Unglingastarf fyrir 13-16 ára
Sumaropnanir í félagsmiðstöðvum
Gufunesbæjar
Unglingar, sem nú í vor ljúka 8., 9. eða 10. bekk, geta í sumar tekið þátt í skemmtilegu félagsmiðstöðvastarfi. Ekki verður opið í öllum félagsmiðstöðvum Gufunesbæjar eins og yfir vetrartímann heldur verða annars vegar opnanir í norðurhluta Grafarvogs og hins vegar í suðurhluta Grafarvogs. Í sumar á að leggja áherslu á dagskrá sem tekur mið af því að það er sumar og sól og því hægt að gera margt áhugavert og spennandi sem erfiðara er að gera yfir vetrartímann. Nánari upplýsingar um dagskrá og staðsetningu sumaropnana verða kynntar unglingum og foreldrum um leið og þær liggja fyrir. Umsjón með félagsmiðstöðvaopnunum í sumar hefur þaulvant starfsfólk sem einnig starfar í félagsmiðstöðvunum yfir vetrartímann.
Allar sömu reglur og viðmið gilda í sumarstarfi félagsmiðstöðva eins og í vetrarstarfinu.
Sumaropnanir félagsmiðstöðvanna hefjast þriðjudaginn 8. júní og þeim lýkur fimmtudaginn 8. júlí en þá fara félagsmiðstöðvarnar í sumarfrí þar til skólastarf hefst í haust.
Dagopnanir:
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13:30-17:00
Kvöldopnanir:
Miðvikudaga kl. 19:00-21:30
Foreldrar og unglingar eru hvattir til að fylgjast með dagskrá og staðsetningu sumaropnana á heimasíðum félagsmiðstöðvanna eða Gufunesbæjar, http://www.gufunes.is/
Skráning
Engin skráning, nema í ferðir
Verð
Frítt, nema í ferðir