Sumarfrístund fyrir börn fædd ´00-´03
SUMARFRÍSTUND
Frístundaheimili Frostaskjóls bjóða upp á þjónustu frá skólaslitum til skólasetningar, utan 19.-31. júlí, þegar lokað verður vegna sumarleyfa starfsmanna. Frístundaheimilið Undraland Grandaskóla mun sameinast Skýjaborgum Vesturbæjarskóla og Selinu Melaskóla í sumar (sjá nánar um opnunartíma þar undir vikur í boði). Frístundaheimilið Selið Melaskóla er með lengstu opnunina í sumar og býðst börnum úr Undralandi og Skýjaborgum að sækja Selið þegar lokað er á öðrum frístundaheimilum. Frístundaheimilið Frostheimar verður með opið fyrstu þrjár vikur sumarsins og síðustu tvær vikurnar fyrir skólasetningu fyrir börn í 3. og 4. bekk og mun dagskráin þar vera sérsniðin fyrir þeirra aldurshóp og með fjölbreyttara og meira krefjandi sniði. Aðrar vikur geta börnin úr Frostheimum nýtt sér þjónustu Selsins og Skýjaborga.
Opnunartími frístundaheimilanna er frá kl. 8.00–17.00. Miðað er við að börnin séu í virkri dagskrá frá kl. 9.00–16.00 og er fast vikugjald fyrir þann tíma. Þó er hægt er að velja um mislangan vistunartíma og greiðist aukalega fyrir þann tíma sem nýttur er utan kl. 9.00-16.00 (sjá nánar í verðskrá):
Kl. 8.00–16.00 Kl. 9.00–16.00 Kl. 9.00–17.00 Kl. 8.00–17.00
Lögð er áhersla á öryggi og kunnuglegt umhverfi í bland við lærdóm og leik og að börnin séu með sama barna- og starfsmannahópnum og þau þekkja frá vetrinum. Unnið verður með vikuþema á öllum stöðunum, dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg og allir eiga að geta fundið viðfangsefni við hæfi.
Frístundaheimili sem bjóða upp á Sumarfrístund:
Frá 12. apríl verður hægt að smella á viðkomandi viku til að fara beint í skráningu í Rafrænni Reykjavík.
Selið v./ Melaskóla, 695 5061, 664 7658, www.frostaskjol.is/selid
07. júní - 11. júní – Lista - og menningarvika
14. júní - 18. júní – Ísland
21. júní - 25. júní - Íþróttavika
28. júní - 02. júlí - Vatnavika
05. júlí - 09. júlí - Útivistarvika
12. júlí - 19. júlí - Dýravika
20. júlí - 24. júlí – Lokað vegna sumarleyfa
27. júlí - 31. júlí – Lokað vegna sumarleyfa
03. ágúst - 06. ágúst - Ævintýravika
09. ágúst - 13. ágúst - Óvissuvika
16. ágúst - 20. ágúst - Náttúruvika
Skýjaborgir v./ Vesturbæjarskóla, 695 5053, www.frostaskjol.is/skyjaborgir
07. júní - 11. júní– Útivistarvika
14. júní - 18. júní– Lista- og menningarvika
21. júní - 25. júní - Vatnavika
28. júní - 02. júlí - Dýravika
09. ágúst - 13. ágúst - Íþróttavika
16. ágúst - 20. ágúst - Ævintýravika
Frostheimar v./ Frostaskjól, 695 5083, 695 6626 www.frostaskjol.is
07. júní - 11. júní– Krakkahreysti
14. júní - 18. júní– Listir og menning
21. júní - 25. júní– Vatnsleikir og fjör
09. ágúst - 13. ágúst– Vísindi og tilraunir
16. ágúst - 20. ágúst– Hellar, fjöll og fjara
Samstarf við sunddeild KR.
Frístundaheimili Frostaskjóls hafa undanfarin sumur átt í samstarfi við sunddeild KR. Foreldrum/forráðamönnum barna í 1. og 2. bekk býðst að skrá börn sín á sundnámskeið hjá KR í gegnum Rafræna Reykjavík um leið og þeir skrá þau í frístundaheimili á vegum Frostaskjóls. Foreldrar/forráðamenn mæta daglega með börnin á sundnámskeið hjá KR, sem hefst kl. 8:30 í Vesturbæjarlaug. Frístundaleiðbeinendur sækja börnin þangað að sundnámskeiði loknu og fylgja þeim tilbaka í frístundaheimilið sitt. Skilyrði fyrir því að skrá barnið í sundhóp kl. 8:30 er að barnið sé jafnframt skráð í frístundaheimilið Selið eða Skýjaborgir á sama tímabili. Athugið að skrá þarf barn bæði í frístundaheimili og á sundnámskeið með sumarfrístund í Rafrænni Reykjavík.
Gjaldskrá fyrir sundnámskeið með sumarfrístund er 5.000. krónur.
1. tímabil: 7. júní - 18. júní
2. tímabil. 21. júní - 2. júlí
3. tímabil: 5.júlí - 16. júlí
4. tímabil: 3. ágúst - 13 ágúst
Nánari upplýsingar
411 5700
www.frostaskjol.is
frostaskjol@itr.is
Skráning
Skráning frá 12. apríl á Rafrænni Reykjavík
Verð
5.130 kr. (5 dagar)
4.720 kr. (4 dagar)
Veittur er 20% systkinaafsláttur.
-----------------------------------------------------------------------------------------------