Sumarnámskeið ÍTR
Reykjavíkurborg

Skólagarðar Reykjavíkur

Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar, Borgartúni 10-12

105 Reykjavík

411 8500, 693 2323

skolagardar@rvk.is

http://www.reykjavik.is

Skólagarðar Reykjavíkur fyrir 8-12 ára

Skólagarðar Reykjavíkur, fyrir börn 8 -12 ára (fædd 1998 – 2002).

Skólagarðarnir hafa að markmiði að kenna börnum umgengni við náttúruna og ræktun matjurta. Hverjum einstaklingi er úthlutað garði og fræi, útsæði og grænmetisplöntum til ræktunar. Með börnunum starfa leiðbeinendur við ræktunina. Það er mikilvægt að börnin mæti vel og séu virk.

Fyrstu tvær vikurnar fara einkum í gróðursetningu og sáningu. Þá tekur við tímabil þar sem börnin læra að hlúa að plöntunum t.d. með vökvun og illgresishreinsun en aðaluppskerutíminn er síðan í kringum 20. ágúst.

Megintilgangur skólagarðanna er að kenna börnunum að rækta matjurtir en öðru hvoru eru farnar ferðir. Haldnar eru sumarhátíðir í hverjum garði með grilli og ýmsum skemmtunum og áhugasamir og framúrskarandi ræktendur verðlaunaðir.

Skólagörðunum lýkur með uppskeruhátíð þar sem boðið er uppá afurðir garðsins og börnunum er afhentar viðurkenningar fyrir sumarstarfið.

Starfsemin hefst 1. júní og lýkur um 20. ágúst.

INNRITUN: Skráning í Skólagarða Reykjavíkur fer fram á slóðinni http://rafraen.reykjavik.is/, frá 1. maí – 23. maí.

Gjald vegna skólagarðana 2010 er 4.000 kr. og verður sendur greiðsluseðill í júní.

Nánari upplýsingar í símum: 693 2323 og 411 8500. Opið virka daga frá kl. 8.00–16.00.

SKÓLAGARÐAR

Þorragötu í Skerjafirði - 693 2443       
Holtavegi í Laugardal - 693 2442      
Fossvogi við Bjarmaland - 693 2329       
Vestan Árbæjarsafns - 693 2309      
Við Jaðarsel - 693 2449      
Kotmýri við Logafold - 693 2447       
Gorvík við Strandveg - 693 2448

Til baka

Nánari upplýsingar

411 8500, 693 2323
skolagardar@rvk.is www.reykjavik.is

Skráning

Innritun fer fram á Rafrænni Reykjavík 1.-23.maí www.reykjavik.is

Verð

4.000 kr.

  • Senda námskeið á vin
  • Prenta
© 2010 ÍTR

Slóð: http://www.rvk.is/sumar/desktopdefault.aspx/tabid-3008/4788_read-11014/