Skráning í starf hjá ÍTR
SKRÁNING Í SUMARFRÍSTUND, SIGLUNES OG FJÖLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐINN
Hægt verður að skrá þátttakendur í gegnum Rafræna Reykjavík frá og með 12. apríl.
Vinsamlega athugið að skráningunni lýkur kl. 12.00 á föstudögum, eigi barn að geta byrjað á mánudeginum á eftir. Ef hætt er við þátttöku án þess að tilkynnt hafi verið um forföll með formlegum hætti til ÍTR á miðvikudegi fyrir upphaf dvalar, þá mun gjald verða innheimt að fullu.
SKRÁNING Í 10-12 ÁRA STARF OG SMÍÐAVELLI
Hægt verður að skrá þátttakendur í gegnum Rafræna Reykjavík frá og með 3. maí.
Vinsamlegast athugið að skráningunni lýkur kl. 12 á föstudögum, ætli barn að fara á smiðju í vikunni á eftir. Þá er hins vegar hægt að hafa samband við viðkomandi frístundamiðstöð þar sem hægt er að skrá barnið ef það er enn laust pláss í smiðjunni.
FÉLAGSMIÐSTÖÐVASTARF
13 - 16 ára unglingar geta komið í félagsmiðstöðvarnar á auglýstum opnunartímum án þess að skrá sig.
Athugið að ekki er hægt að nýta frístundakortið í sumarstarf á vegum ÍTR.
Ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir farið í frístundamiðstöðvar ÍTR (helst fyrir hádegi) og í þjónustumiðstöðvar hverfanna og fengið aðstoð með skráningu. Ekki er hægt að skrá börn á sumarnámskeið í gegnum síma. Starfsfólk þjónustumiðstöðva, frístundamiðstöðva og Símavers Reykjavíkurborgar (s. 411 1111) geta þó leiðbeint símleiðis ef forráðamenn eru við nettengda tölvu.
SKRÁNING Í ANNAÐ SUMARSTARF
Upplýsingar um skráningu í annað sumarstarf en hjá ÍTR er að finna á upplýsingasíðum hvers sumarstarfstilboðs fyrir sig.