Smiðjur fyrir 10-12 ára börn fædd ´97-´99

FRÍSTUNDATILBOÐ FYRIR 10-12 ÁRA

Smiðjurnar verða starfræktar í fjórar vikur í sumar á tímabilinu 7. júní – 2. júlí

Í boði er mikið úrval af smiðjum og skemmtilegum viðburðum og ferðum sem standa yfir í hálfan eða heilan dag og hægt að skrá sig í hvern viðburð fyrir sig.

Mikill fjölbreytileiki er í dagskránni hjá okkur og stefnt er að því að allir krakkar ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hvert námskeið er auglýst sérstaklega og kosta smiðjurnar annarsvegar 300 kr og hinsvegar 600 kr. Skráning hefst 3. maí á Rafræn Reykjavík.

Smiðjur fyrir 10-12 ára börn fædd ´97-´99
Frostaskjól

Vika 1: 7. -11. júní
Mánudagurinn 7. júní kl. 13:00-16:00 - Leikir og sumargrill,  kr. 300
Þriðjudagurinn 8. júní kl. 10:00-15:00 - Sundferð á Álftanes, kr. 600
Miðvikudagurinn 9. júní kl. 13:00 - 16:00 - Skartgripagerð/Fímóleir, kr. 300
Fimmtudagurinn 10. júní kl. 10:00-15:00 - Hjólaferð í Nauthólsvík, kr. 300
Föstudagurinn 11. júní kl. 10:00-14:00 - Mannlegt fuzzball/fótboltaspil, kr. 300

Vika 2: 14.-18 júní
Mánudagurinn 14. júní kl. 13:00-16:00 - Bolagerð, kr. 300
Þriðjudagurinn 15. júní kl. 10:00-15:00 - Klifur í Gufunesbæ,  kr. 300
Miðvikudagurinn 16. júní kl. 13:00-16:00 - Konfektgerð, kr. 300
Föstudagurinn 18. júní kl. 10:00-16:00 - Bæjarferð á Akranes, kr. 600

Vika 3: 21. -25. júní
Mánudagurinn 21. júní kl. 13:00-16:00 - Flugdrekagerð, kr. 300
Þriðjudagurinn 22. júní kl. 10:00-15:00 - Hjólaferð í Siglunes, kr. 300
Miðvikudagurinn 23. júní kl. 13:00-16:00 - Bakstur- Ertu nýi Jói Fel? kr. 300
Fimmtudagurinn 24. júní kl. 10:00-12:00 - Brjóstsykursgerð, kr. 300
Fimmtudagurinn 24. júní kl. 13:00-15:00 - Brjóstsykursgerð, kr. 300
Föstudagurinn 25. júní  kl. 10:00-15:00 - Esjuganga,  kr. 300

Vika 4: 28. júní – 2. júlí 
Mánudagurinn 28. júní kl. 13:00-16:00 - Heimsókn á slökkvistöðina kr. 300
Þriðjudagurinn 29.  júní kl. 13:00-15:00 - Töfranámskeið, kr. 600
Miðvikudagurinn 30. júní kl. 13:00-16:00 - Matargerð, kr. 600
Fimmtudagurinn 1. júlí kl. 10:00-15:00 - Hellaferð í Maríuhelli, kr. 600
Föstudagurinn 2.  júlí kl. 10:00-15:00 - Strandpartí í Nauthólsvík, kr. 600

Nánari upplýsingar um smiðjurnar má nálgast hér.

Veggspjald

Nánari upplýsingar

411 5700
www.frostaskjol.is
frostaskjol@itr.is

Skráning

Skráning hefst 3. maí á
Rafrænni Reykjavík eða í síma 411 5700
Skráning er bindandi.

Verð

300 kr. / 600 kr.
Innheimt í lok tímabils


Gleðilegt sumar!

Í sumar verður nóg framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára í Reykjavík. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur (ÍTR) býður upp á sumarfrístund fyrir 6-9 ára á frístundaheimilunum, smíðavelli fyrir 8-12 ára, fjölbreytt starf fyrir 10-12 ára og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára. Að auki býður ÍTR upp á námskeið í Siglunesi og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Skráning er hafin í Rafrænu Reykjavík.

Upplýsingar um þetta starf hjá ÍTR sem og fjölmargra annarra aðila er að finna á þessum vef og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Á leitarvél hér fyrir neðan er með einföldum hætti hægt að finna framboð á viðfangsefnum eftir tímabili, aldri, hverfi og efnisflokk.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar: