Vinnuskóli Reykjavíkur

Vinnuskóli Reykjavíkur starfar sumar og vetur. Skólinn starfar eftir grænu skipulagi með áherslu á umhverfislæsi og heilbrigðislæsi með styrkingu á borgarvitund nemenda.

Vinnuskóli Reykjavíkur er á Umhverfissvið Reykjavíkurborgar og leiðarljós skólans er að fylgja Staðardagskrá 21.

Markmið skólans eru að:
- Móta umhverfis- og þróunarverkefni í samstarfi við borgarstofnanir til að bæta borgarumhverfið í víðum skilningi.
- Byggja upp vinnuvirðingu hjá nemendum og leiðbeinendum
- Skapa skilning fyrir verðmætum sem eru í umhverfinu og vilja til að fara vel með það sem hverjum er treyst fyrir
- Skapa trausta og sterka liðsheild í öllu starfi skólans
- Gera starfið í Vinnuskólanum eftirsóknarvert og marktækt sem atvinnutækifæri
- Vinna með mannauð og sterkar hliðar nemenda og leiðbeinenda í skólanum
- Gefa nemendum fjölbreytileg tækifæri til að fræðast um borgina


Sérstaða Vinnuskóla Reykjavíkur er að:
- Skólinn er ekki skólaskyldur og vinnur ekki samkvæmt lögskipaðri námskrá.
- Skólanum er skylt að taka við öllum nemendum sem skrá sig til sumarvinnu á aldrinum 13 - 16 ára.
- Vinna nemenda er þýðingamikil fyrir borgina og útmörkina og fá nemendur greitt fyrir vinnuframlag sitt
- Nemendur fá fræðslu sem fer að mestu leyti fram úti á vettvangi
- Fræðsla skólans snýr að árangursríkum vinnubrögðum, þekkingu á borginni, umhverfisáherslum og heilbrigðum lífsstíl
- Nemendur og leiðbeinendur fá vinnu- og frammistöðumat fyrir árangur í vinnubrögðum, afköstum og framkomu

Heimasíða: www.vinnuskoli.is


 


Umhverfis-og samgöngusvið
Reykjavíkurborgar
Borgartúni 12-14
Sími: 411 8500
Afgreiðsla - 8:20 - 16:15
umhverfissvid@reykjavik.is
Upplýsingar um sviðið

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is