SUMARDAGSKRÁ 2009

Grasagarður Reykjavíkur nýtur mikilla vinsælda borgarbúa.

Hátíðaliljur í blóma
Fimmtudagur 14. maí kl. 20
Í Grasagarðinum má líta fjölbreytt sýnishorn af hátíðaliljum en til þeirra teljast m.a. páskaliljur og jónsmessuliljur. Blómlitur þeirra getur verið í gulum, hvítum, appelsínugulum og bleikum samsetningum og þær geta verið einfaldar, hálffylltar eða fylltar.  Ríflega 80 yrki vaxa í garðinum og hefur þeim verið komið þannig fyrir að auðvelt er að átta sig á fjölbreytileika þeirra. 
Leiðsögn:  Hjörtur Þorbjörnsson safnvörður.

Sígrænir smárunnar
Fimmtudagur 4. júní kl. 20
Fjöldi af sígrænum trjám og runnum er í Grasagarðinum og við beinum sjónum okkar að þeim smávöxnu að þessu sinni. Einir, ýviður, greni, dverglífviður, sýprus, lífviður og margbreytileg yrki af þeim verða kynnt.
Leiðsögn:  Anna Margrét Elíasdóttir garðyrkjufræðingur.

Dagur villtra blóma – Búrfellsgjá
Sunnudagur 14. júní kl. 9.30
Norrænn blómadagur er haldinn á sama tíma á öllum Norðurlöndum og hér á landi er hann tileinkaður villtum íslenskum jurtum. Gengið verður um Búrfellsgjá sem er tilkomumikil hrauntröð á Reykjanesskaga.  Blómplöntur verða greindar til tegunda, fjallað um gróðurfar á svæðinu og starfsemi Flóruvina kynnt.  
Í samstarfi við Útivist og Flóruvini.
Leiðsögn: Eva G. Þorvaldsdóttir, grasafræðingur.
Brottför frá Grasagarðinum í Laugardal – ókeypis ferð og fræðsla.

Sumarsólstöðutónleikar Páls Óskars og Moniku
Sunnudagur 21. júní kl. 23
Miðaverð  2000 kr. Pantanir í síma 866 3516
Takmarkaður sætafjöldi

Fjögurra stjörnu plöntur
Þriðjudagur 23. júní kl. 20
Fræðsluganga og afhjúpun minningabekks
Garðbekkur í minningu Ólafs B. Guðmundssonar lyfjafræðings og ritstjóra Garðyrkjuritsins verður afhjúpaður. Ólafur var óþreytandi við að vekja áhuga á garðrækt og  kynna plöntur fyrir almenningi og eftir hann liggja fjöldamargar greinar þar að lútandi. Fræðsludagskrá þar sem fjallað verður um fjölærar jurtir sem hann hafði dálæti á.
Í samstarfi við Garðyrkjufélag Íslands.
Leiðsögn:  Ingunn Óskarsdóttir, garðyrkjufræðingur.

Uppskeruhátíð í nytjajurtagarðinum
Laugardagur 22. ágúst kl. 13-16
Gestum verður boðið að bragða á nýuppteknu grænmeti úr garðinum og frætt verður um ræktun þess .Kynning á kryddjurtum og lækningajurtum. Jarðgerð er ómissandi þáttur í hverjum heimilisgarði og sýnt verður hvernig hægt er að útbúa kraftmikla mold úr eldhús- og garðaúrgangi.

Boðið verður upp á jurtate úr piparmintu sem ræktuð er í garðinum.

Fræðslan er í höndum grasafræðinga og garðyrkjufræðinga Grasagarðsins:  Anna Margrét Elíasdóttir, Auður Óskarsdóttir, Eva G. Þorvaldsdóttir, Hjörtur Þorbjörnsson, Ingunn Óskarsdóttir og Jóhanna Þormar. Allar fræðslugöngur hefjast á Laugatungutorgi sem er strax til hægri þegar komið er inn um aðalinngang.  Samkvæmt hefð verður boðið upp á heitt piparmintute í lok hverrar göngu.

Café Flóra
Ljúffengar veitingar.
Opið kl. 10 – 22 alla daga frá maí til september
Sími 553 8872
Veitingamaður: Marentza Poulsen.

Grasagarður Reykjavíkur

Sumardagskrá 2007

SUMARDAGSKRÁ 2008

Starfsmenn

Sumardagskrá 2006


Umhverfis-og samgöngusvið
Reykjavíkurborgar
Borgartúni 12-14
Sími: 411 8500
Afgreiðsla - 8:20 - 16:15
umhverfissvid@reykjavik.is
Upplýsingar um sviðið

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is