Leiðarljós Umhverfis- og samgönusviðs

Þann 1. júní 2005 var formlega stofnað Umhverfissvið Reykjavíkurborgar sem tók við skyldum Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur. Að auki var verkefnum fjölgað með því að færa stefnumótun í samgöngumálum til hins nýja sviðs. Starfsemi Umhverfissviðs fellur undir pólitíska yfirstjórn Umhverfisráðs Reykjavíkur. Umhverfissvið breytti um heiti og frá og með 1. janúar 2008 og heitir nú Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar. Umhverfisráð hét frá sama tíma Umhverfis- og samgönguráð.
Umhverfis- og samgöngusvið hefur það að leiðarljósi að tryggja borgarbúum fallegt og heilnæmt umhverfi. Umhverfis- og samgöngusvið vinnur að fegurri ásýnd borgarinnar og sjálfbærri þróun í anda Staðardagskrár 21. Það stendur vörð um þau lífsskilyrði sem felast í ómenguðu umhverfi og stuðlar að greiðum og öruggum samgöngum fyrir alla. Umhverfis- og samgöngusvið hefur það enn fremur að leiðarljósi að sýna gott fordæmi um vistvænan rekstur í anda Staðardagskrár 21.
Umhverfisstefna sviðsins