Matjurtagarðar
Tilkynning 14. maí 2010: Garðarnir í Skammadal verða opnaðir laugardaginn 15. maí. Búið er að plægja og tæta þá.
.....
Reykjavíkurborg vill koma til móts við þá borgarbúa sem vilja leigja matjurtagarða sumarið 2010.
200 matjurtagarðar verða leigðir út á vegum borgarinnar í Skammadal.
100 matjurtagarðar verða leigðir út til almennings í Skólagörðum Reykjavíkur. Garðar eru í boði í Breiðholti og Árbæ. Einnig hafa losnað nokkrir garðar í Vesturbæ, Laugardal og Fossvogi.
Leigugjöld ársins 2010 eru 4.400 kr. fyrir garðland í Skammadal (ca. 100m2), 4.000 kr. fyrir garð í Skólagörðum Reykjavíkur (ca. 18m2).
Upplýsingar eru veittar hjá Umhverfis- og samgöngusviði á www.umhverfissvid.is, í síma 411-1111 og á netfangið matjurtagardar@reykjavik.is
Garðarnir í Skammadal verða tilbúnir upp úr miðjum maí og verður tilkynning sett á heimasíðu Umhverfis- og samgöngusviðs þegar þeir eru tilbúnir.
Garðarnir í Skólagörðunum fyrir almenning verða ekki tilbúnir fyrr en Skólagarðarnir opna í byrjun júní.Tilkynning mun verða sett á heimasíðu Umhverfis- og samgöngusviðs þegar þeir eru tilbúnir.
Reykjavíkurborg hefur gert samning við Garðyrkjufélag Íslands um rekstur matjurtagarða í Stekkjarbakka og Grafarvogi. Nánari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu Garðyrkjufélags Íslands, www.gardurinn.is , undir Grenndargarðar.
Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar.
Skrifað 20. maí 2010