Íþrótta- og tómstundasvið

Sumarstarf 2009

Sumarstarf forsíðaÍþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur hefur starfrækt skemmtileg, spennandi og þroskandi sumarnámskeið mörg undanfarin ár. Það hefur lengi verið yfirlýst stefna ÍTR að vera í takt við þjóðfélagsbreytingar hverju sinni og bregðast við breyttum aðstæðum og þannig þróa starfið til hagsbóta fyrir börn og foreldra í borginni.

Samfara þessum breytingum tökum við nýjan vef í gagnið. Upplýsingavefurinn www.itr/sumar hefur að geyma úrval þess sem er í boði fyrir börn og unglinga í borginni í sumar. Vonumst við til að þetta geri val foreldra og barna auðveldara og aðgengilegra með því að hafa upplýsingarnar á einum stað.

Umsjón með sumarstarfi á vegum ÍTR er í höndum fagfólks með mikla reynslu af barna- og unglingastarfi. Eingöngu er ráðið til starfa fólk sem hefur náð a.m.k. tuttugu ára aldri og einnig fer fram markviss þjálfun áður en námskeiðin hefjast en rík áhersla er lögð á að starfsfólk sé hæft í sínu starfi. Sú þjálfun sem starfsfólkið fær er bæði fjölbreytt og hagnýt, fræðslan varðar m.a. þekkingu á viðfangsefnum námskeiðanna, skyndihjálp og öryggisferlum, þannig að allar öryggiskröfur séu uppfylltar. Sérstök aðgát er höfð í sundferðum, siglingum og þegar ferðast er með börnin á milli staða.

Starfsfólk á námskeiðum ÍTR leggur metnað sinn í að öllum þátttakendum líði vel. Af öryggisástæðum er fjöldi barna á hvern leiðbeinanda aldrei fleiri en átta á leikja- og ævintýranámskeiðum. Hverjum hópi fylgir ávallt bakpoki sem í er nauðsynlegur sjúkrabúnaður, listi með nöfnum allra þátttakenda og forráðamanna ef eitthvað kemur upp á, strætókort, sími, auk fleiri nytsamlegra hluta.

Börnin þurfa að vera klædd í samræmi við veður. Ekki er boðið upp á hádegisverð og því verða börnin að koma með nesti.

Leikjahandbók ÍTR


Bæjarháls 1

Íþrótta- og tómstundasvið
Reykjavíkur
Bæjarhálsi 1
Sími: 411 5000
itr@itr.is
Upplýsingar um ÍTR

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is