Úttektir - lokaúttektir

Úttektir
Þegar framkvæmdum á verkþáttum samkvæmt byggingarleyfi er lokið en meðan atrið máls eru sýnileg skal bygingarstjóri óska eftir úttekt byggingarfulltrúa. Í byggingarreglugerð eru taldir upp 13 verkþættir og um áfangaúttektir vegna þeirra.

Byggingareftirlit (41. gr. byggingarlaga)
Byggingarnefndarmönnum, byggingarfulltrúa og starfsmönnum hans skal frjáls aðgangur að lóðum og mannvirkjum til eftirlits með byggingarframkvæmdum.
Uppdrættir, samþykktir og áritaðir af byggingarfulltrúa, skulu ætíð liggja fyrir á byggingarstað og vera eftirlitsmönnum aðgengilegir.
Liggi rökstuddur grunur fyrir um að fullbyggðu mannvirki sé verulega áfátt með  tilliti til ákvæða laga og reglugerða um byggingarmál skal byggingarfulltrúa og starfsmönnum hans heimill aðgangur þar til eftirlits. Eigi er þó heimilt að fara í þessum tilgangi inn í íbúðarhús án samþykkis eiganda eða umráðamanns húsnæðisins nema að fengnum úrskurði dómara.
Sé ásigkomulagi, frágangi, notkun, umhverfi eða viðhaldi húss eða annars mannvirkis ábótavant eða stafi af því hætta að mati byggingarfulltrúa, eða ekki er gengið frá því samkvæmt samþykktum uppdráttum og byggingarlýsingu, skal hann gera eiganda eða umráðamanni þess aðvart og leggja fyrir hann að bæta úr því sem áfátt er.

Lokaúttekt
Þegar framkvæmdum samkvæmt byggingarleyfi er lokið og áður en mannvirki er tekið í notkun skal fara fram lokaúttekt. Byggingarstjóri eða byggjandi, eigandi mannvirkisins óskar eftir  úttektinni við byggingarfulltrúa. Byggingarstjóri skal tilkynna hönnuðum og iðnmeisturum hvenær lokaúttekt fer fram. Húsnæði sem samþykkt hefur verið fyrir samkomuhald, veitingastarfsemi og hótelrekstur ásamt kvikmynda- og leikhúsum má ekki taka í notkun nema lokaúttekt hafi farið fram.

Eyðublað um  lokaúttekt (PDF)

Hús tekið í notkun
Ekki má flytja í ófullgert húsnæði eða hefja starfsemi í því nema ákvæðum varðandi burðarþol, hollustuhætti og brunaöryggi sé fullnægt. Þess vegna er ástæða til að vekja athygli á öryggismálum varðandi gönguleiðir, tröppur, handrið og aðra þætti sem kunna að valda slysum ef frágangi er ekki lokið.

Stöðuúttekt
Sé ófullgert húsnæði tekið í notkun skal byggingarstjór óska eftir úttekt á stöðu framkvæmda. Kallast sú úttekt stöðu úttekt. Byggingarfulltrúi skal þá setja byggjanda frest til að ljúka framkvæmdum.

Eyðublað um  loka- eða stöðuúttekt (PDF)

Dagsektir
Séu tímafrestir sem gefnir eru við loka og stöðuúttekt ekki virtir er hægt að beita ákvæðum um dagsektir.

borgartún 12-14
Skipulags- og byggingarsvið
Reykjavíkurborgar
Borgartúni 12 - 14
Sími: 411 3000
skipulag@reykjavik.is

skipbygg@rvk.is
Upplýsingar um sviðið

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is