Skráningar fasteigna og eignaskiptayfirlýsingar
1. Skráningar fasteigna
Um fasteignir eru haldnar tvær grundvallar skrár skrár. Fasteignamat ríkisins sér um rekstur Landsskrár fasteigna Í Landskrá fasteigna skal skrá allar fasteignir í landinu og er hún grundvöllur skráningar fasteigna og þinglýsingabókar fasteigna. Byggingarfulltrúi skráir fasteignir samkvæmt gögnum um skiptingu í séreignarhluta og stærðir sem fylgja samþykktum umsóknum um nýjar og breyttar fasteignir í vinnsluskrá FMR sem færir gögnin eftir endurskoðun í Landsskrá fasteigna og Fasteignaskrá.
2. Fasteign
Fasteign samkvæmt lögum um fasteignaskráningu er afmarkaður hluti lands, ásamt lífrænum og ólífrænum hlutum þess, réttindum sem því fylgja og þeim mannvirkjum sem varanlega eru við landið skeytt.Fasteignir, hluta þeirra og einstök mannvirki skal skrá sem sérstakar eindir í Landskrá fasteigna svo sem hér segir: a. land, þ.e. hver sá skiki lands sem vegna sérgreinds eignar- eða afnotaréttar, hagnýtingar, auðkenna eða landamerkja getur talist sjálfstæð eind, b. mannvirki sem gert hefur verið í landi eða á eða verið við það tengt, c. séreignarhlutar í fjöleignarhúsum samkvæmt lögum um fjöleignarhús, d. hlutar mannvirkja ef um sérstaka notkun þeirra er að ræða, e. ræktun, f. hlunnindi, g. önnur réttindi tengd fasteignum.
3. Skráningarreglur FMR og byggingarfulltrúa
Um skráningu fasteigna, hlutfallstalna ofl. í fjöleignarhúsum skal farið að fyrirmælum í reglugerð nr. 910/2000. Fylgiskjal með reglugerðinni eru skráningarreglur Fasteignamats ríkisins og byggingarfulltrúa. Í skráningarreglum kemur fram að skráningatafla skuli fylgja aðaluppdráttum. Skráningartaflan er grunnur að eignaskiptayfirlýsingu ásamt aðaluppdráttum. Gefið hefur verið út sérprentað leiðbeiningarhefti ásamt dæmasafni, jafnframt hefur FMR útbúið diskling með skráningartöflunni og reikniforriti fyrir hana. Skráningarreglur og dæmasafn fást á skrifstofu FMR í Borgartúni 21, 105 Reykjavík og á vefsíðum FMR. Aðaluppdráttum af nýjum mannvirkjum og þeim breyttu uppdráttum sem hafa skráningarbreytingu í för með sér skal fylgja skráningartafla í samræmi við skráningarreglurnar.
Skráningartöfluna skal einnig afhenda á rafrænu formi á netfangið skranbygg@rvk.is.
Skráningartafla FMR
4. Eignaskiptayfirlýsingar
Eignaskiptayfirlýsingar skal vinna samkvæmt lögum nr 26/1994, sem tóku gildi 1.1.1995. Fyrsta reglugerð samkvæmt lögum þessum, reglugerð nr.538/1995 samkvæmt lögum þessum var í gildi frá 9.10.1995, en reglugerð sem er nú í gildi, er nr. 910/2000. Yfirferð eignaskiptayfirlýsinga hefur verið tölvuskráð hjá byggingarfulltrúa frá 1994.
Eignaskiptayfirlýsing
Þjónustulýsing um eignaskiptayfirlýsingu (PDF)