Til hönnuða og byggingarstjóra

Ábendingar til hönnuða:

a) Klæðning steyptra mannvirkja
Þegar aðalhönnuður hannar útlit klæðninga á steypt mannvirki skal fylgja umsókn um byggingarleyfi ástandsskýrsla burðarþolshönnuðar.

b) Breytingar á mannvirkjum
Þegar sótt er um breytingar á mannvirkjum er þess óskað að hönnuðir geri ítarlega grein fyrir í hverju breyting er fólgin í texta og stærðum sem þeir skrá á uppdrætti. Góð skráning einfaldar afgreiðslu mála og kemur í veg fyrir misskilning.

c) Ferlimál
Hönnuðir aðalteikninga eru minntir á ákvæði byggingarreglugerðar um aðgengi fatlaðra að byggingum og ber í því sambandi að hafa í huga að ákvæði byggingarreglugerðar eru lágmarksákvæði. Ennfremur er rétt að hönnuðir fylgi eftir útfærsluatriðum á byggingarstað en þar verða stundum til við útfærslu óvæntar hindranir sem geta eyðilagt þá vinnu og fjárfestingu sem lögð hefur verið í viðkomandi verk.

d) Skilti
Skilti á lóðum og húsum skulu vera í samræmi við samþykkt um skilti í Reykjavík frá 1996.

e) Bifreiðastæði á lóðum
Uppgjör um bifreiðastæðaþörf á lóðum samkvæmt byggingarreglugerð og skilmálum um skipulags á hverjum stað skal koma fram á uppdætti aðalhönnuðar. Um stærð bifreiðastæða fer eftir reglum sem samþykktar voru af borgarráði og byggingarnefnd 1987.

f) Sérteikningar hönnuða
Við samþykkt byggingarleyfis að uppfylltum skilyrðum áætlar byggingarfulltrúi skil nauðsynlegra séruppdrátta sem aðalhönnuður og tæknihönnuðir skila og samþykkja þarf áður en byggingarleyfi tekur gildi.

g) Starfsleyfisskyld notkun
Sérstök athygli aðalhönnuða er vakin á nauðsyn þess að merkja inn á umsóknareyðublað ef ætlun umsækjanda um byggingarleyfi er að nota húsnæði fyrir starfsleyfisskyldan iðnað.

Þjónustulýsing um útgáfu byggingarleyfis
Þjónustulýsing um útgáfu byggingarleyfis (PDF)

Ábendingar til byggingarstjóra og meistara:

a) Byggingarstjóri
Byggingarstjóri er framkvæmdastjóri byggingarframkvæmda og ræður alla iðnmeistara í upphafi verks og skráir hjá byggingarfulltrúa. Hann skal hafa tryggingu í gildi í samræmi við byggingarreglugerð. Víki byggingarstjóri fyrir öðrum áður en verki lýkur skal gera úttekt um stöðu verks og ábyrgð nýs byggingarstjóra takmarkast við verkþætti sem unnið er að eftir að hann hefur störf. Byggingarstjóra ber ábyrgð gagnvart byggjanda og byggingaryfirvöldum á að byggt sé í samræmi við samþykkta uppdrætti lög og reglugerðir.

b) Hver tekur að sér byggingarstjórn
Byggingarstjórar geta verið:
1. Húsasmíðameistarar, múrarameistarar, pípulagnameistarar, vélvirkjameistarar, rafvirkjameistarar og byggingariðnfræðingar, sem hlotið hafa viðurkenningu samkvæmt skipulags og byggingarlögum og tilskilið starfsleyfi.
2. Arkitektar, byggingarverkfræðingar, byggingartæknifræðingar, byggingarfræðingar og aðrir verkfræðingar með hliðstæða menntun á byggingarsviði.
3. Fyrirstæki og stofnanir þar sem aðili starfar sem uppfyllir skilyrði í 1. og 2. tölulið, enda annist hann störf byggingarstjóra.

c) Iðnmeistari
Iðnmeistarar sem hlotið hafa löggildingu umhverfisráðherra eða staðbundna viðurkenningu geta tekið að sér verkþætti og borið ábyrgð á þeim gagnvart byggingaryfirvöldum og byggjanda. Víki iðnmeistari fyrir öðrum áður en verki lýkur skal gera úttekt um stöðu verks og ábirgð nýs iðnmeistara takmarkast við verkþætti sem unnið er að eftir að hann hefur störf.

d) Einn byggingarstjóri, einn iðnmeistari
Byggingarstjóri er eins og sjá má af þeim ákvæðum byggingarlaga og reglugerðar sem hér er vísað til ein á hverju byggingarleyfi og hann ræður samkvæmt orðanna hljóðan einn iðnmeistara til starfa í hverri iðngrein.

e) Viðvera byggingarstjóra við úttektir
Byggingarstjóra er skylt að vera viðstaddur úttekt og byggingarfulltrúi getur krafist þess að hlutaðeigandi iðnmeistari sé viðstaddur.

borgartún 12-14
Skipulags- og byggingarsvið
Reykjavíkurborgar
Borgartúni 12 - 14
Sími: 411 3000
skipulag@reykjavik.is

skipbygg@rvk.is
Upplýsingar um sviðið

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is