Reglur

Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar
Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar
1.
Bókmenntaverðlaunin heita Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og eru veitt í minningu Tómasar Guðmundssonar. Þau eru veitt fyrir óprentað handrit að ljóðabók. Engin ákvæði eru um stærð verksins.
2.
Verðlaunaféð er greitt af Reykjavíkurborg. Ein verðlaun eru veitt. Verðlaunin eru veitt árlega í vetrarbyrjun. Verðlaunafjárhæð er samkvæmt ákvörðun menningar- og ferðamálaráðs hverju sinni í samræmi við fjárhagsáætlun.
3.
Dómnefnd til verðlaunanna er skipuð af menningar- og ferðamálaráði til eins árs í senn. Hana skipa þrír menn, þar af tveir samkvæmt tilnefningu menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar og einn samkvæmt tilnefningu Rithöfundasambands Íslands. Menningar- og ferðamálaráð skipar formann dómnefndar. Dómnefnd skal skipuð áður en auglýst er eftir nýjum handritum. Tilkynna skal borgarráði um skipan dómnefndar.
4.
Auglýst skal eftir handritum að lokinni úthlutun og skulu handrit, sem keppa til næstu verðlauna, berast skrifstofu menningar- og ferðamálasviðs fyrir 1. júní á úthlutunarári.
Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka, má fella verðlaunaafhendingu niður það ár.
Handritum sem keppa til verðlaunanna þarf að skila merktum dulnefni, en nafn og heimilisfang fylgi með í lokuðu umslagi.
Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður.
Samþykkt í borgarráði 15. nóvember 1994
með breytingu á 1. mgr. 4 gr. sem gerð var í borgarráði 23. september 1997.
Breyting á verðlaunafjárhæð (2. gr.) skv. samþykkt borgarráðs 4. september 1996.
Breyting á 2. gr. samþykkt í borgarráði 2. október 2001.
Breyting á 1., 2. , 3. og 4. gr. samþykkt í borgarráði 16. júní 2005.
Breyting á 3. og 4. gr. samþykkt í borgarráði 6. mars 2008.