Aftur á forsíðu borgarhlutans.
 Hausthátíð
 Laugardalsvöllur
Laugardalshöll

Þjónusta í boði

Hér er að finna yfirlit yfir þá þjónustu sem í boði er á þjónustumiðstöðinni. Nánari upplýsingar um þjónustuna má fá í síma 411-1500, einnig er unnt að senda fyrirspurn á netfangið: laugardalur.haaleiti@reykjavik.is 

Akstursþjónusta fyrir eldri borgara
Á þjónustumiðstöðinni er hægt að sækja um akstursþjónustu fyrir eldri borgara. Um er að ræða þjónustu við íbúa Reykjavíkur sem eru 67 ára og eldri, eru ófærir um að nota almenningssamgöngur vegna langvarandi hreyfihömlunar og hafa ekki aðgang að eigin farartæki. Eldri borgarar geta nýtt þjónustuna í læknisheimsóknir, skipulagða endurhæfingu, félagsstarf, verslanir, heimsóknir og fleira.
Umsókn um akstursþjónustu. (PDF skjal).

Alhliða upplýsingamiðlun
Á þjónustumiðstöðinni eru veittar upplýsingar um þjónustu Reykjavíkurborgar. Í símaveri Reykjavíkurborgar sími: 411- 1111 er auk þess alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu Reykjavíkurborgar. Hægt er að skila öllum umsóknum um þjónustu borgarinnar til þjónustumiðstöðvarinnar sem ber ábyrgð á því að koma þeim í réttar hendur innan borgarkerfisins.

Daggæsla í heimahúsum
Dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi, en Menntasvið Reykjavíkurborgar veitir starfsleyfi og sinnir eftirliti með starfseminni eins og kveðið er á um í reglugerð félagsmálaráðuneytisins nr. 907 frá 2005. Daggæsluráðgjafi á Þjónustumiðstöðinni veitir dagforeldrum og foreldrum ráðgjöf og tekur á móti umsóknum um niðurgreiðslur.

Ferðaþjónusta fatlaðra
Á þjónustumiðstöðinni er hægt að sækja um ferðaþjónustu fyrir fatlaða. Um er að ræða þjónustu við þá íbúa Reykjavíkur sem eru ófærir um að nota almenningsvagnaþjónustu vegna langvarandi fötlunar og hafa ekki aðgang að eigin farartæki. Hægt er að nýta þjónustuna til vinnu, skóla, lækninga, hæfingar og einkaerinda.
Umsókn um ferðaþjónustu fatlaðra. (PDF skjal)

Félagsleg ráðgjöf
Sérfræðingar veita einstaklingum og fjölskyldum faglega ráðgjöf, svo sem vegna uppeldis barna og unglinga, fjárhagsvanda, veikinda, fötlunar, öldrunarmála, vímuefnamála, umgengnis- og skilnaðarmála svo dæmi séu nefnd.

Fjárhagsaðstoð.
Einstaklingar (18 ára og eldri) og fjölskyldur með mánaðartekjur undir ákveðnu marki geta sótt um fjárhagsaðstoð. Aðstoðin getur verið í formi  styrks láns eða eftir atvikum.
Reglur um fjárhagsaðstoð  (PDF skjal)

Frístundir og félagsstarf
Á vegum þjónustumiðstöðvarinnar er félagsstarf fyrir fullorðna í boði víðsvegar um Laugardal og Háaleiti. Veittar eru upplýsingar um félagsstarfið og annað frístundastarf  í síma 411-1500

Heimaþjónusta
Þeir sem búa í heimahúsum og þurfa aðstoð við heimilishald, svo sem vegna veikinda eða fötlunar geta sótt um heimaþjónustu til Þjónustumiðstöðvarinnar.
Umsókn um félagslega heimaþjónustu  (PDF skjal)
Umsókn um kvöld og helgarþjónustu  (PDF skjal)
Umsókn um heimsendan mat  (PDF skjal)

Húsaleigubætur
Leigjendur íbúðarhúsnæðis eiga rétt á húsaleigubótum að uppfylltum skilyrðum, meðal annars um leigusamning og tekjur. Sérstakar húsaleigubætur eru fjárstuðningur til greiðslu húsaleigu á almennum markaði, umfram almennar húsaleigubætur og eru ætlaðar þeim sem búa við erfiðar félags- og fjárhagslegar aðstæður. Úthlutun sérstakra húsaleigubóta er byggð á mati á aðstæðum umsækjanda.
Umsókn um húsaleigubætur (PDF skjal)
Reikniforrit vegna húsaleigubóta (PDF skjal)
Upplýsingar um húsaleigubætur (PDF skjal)

Húsnæði
Tekið er á móti umsóknum um félagslegt leiguhúsnæði, þjónustuíbúðir fyrir aldraða, dvalarrými aldraða auk sértækra búsetuúrræða. Úthlutun húsnæðis er byggð á mati á aðstæðum umsækjenda. Símatímar vegna húsnæðismála eru: Mánudaga og fimmtudaga klukkan frá kl. 10:00 til 11:00 í síma 411-1565.
Umsókn um þjónustuíbúð (PDF skjal)
Umsókn um félagslegt leiguhúsnæði (PDF skjal)

Hverfastarf
Til að auðga mannlíf og menningu í hverfum borgarinnar leggur starfsfólk þjónustumiðstöðvarinnar áherslu á að styrkja hvers kyns hverfastarf og forvarnarstarf í samvinnu við íbúa, félagasamtök og aðra þá sem vilja láta til sín taka. Stuðningur getur verið í ýmsu formi, svo sem með þátttöku starfsmanna og nýtingu húsnæðis þjónustumiðstöðvarinnar.

Innritun í leikskóla
Tekið er á móti umsóknum um leikskólapláss fyrir börn og veittar upplýsingar um biðlista.
Umsókn um leikskóla

Kennslu- og sérkennsluráðgjöf. Sérkennsluráðgjafar sinna ráðgjöf um sérkennslu eða sértæka aðstoð við barn í leik- og grunnskóla, þar með talið aðstoð við gerð einstaklingsnámsskráa. Kennsluráðgjöf felur m.a. í sér ráðgjöf til starfsfólks grunnskóla um kennsluhætti og skólaþróun.

Sálfræðiþjónusta. Sálfræðingar sinna frumgreiningum þegar grunur vaknar um frávik í þroska barna á leik- og grunnskólaaldri. Auk þess veita sálfræðingar ráðgjöf til foreldra og starfsfólks leik- og grunnskóla og eftir atvikum skammtímameðferð vegna frávika í vitsmuna- tilfinninga- eða félagsþroska barns.

Umsóknir um dvalarrými. Sérfræðingar meta aðstæður fólks þegar sótt er um dvalarrými fyrir aldraða. Aðstæður eru skoðaðar með tilliti til heilsufars, félagslegra aðstæðna og fjölskylduaðstæðna. Einnig veita sérfræðingar Þjónustumiðstöðvarinnar umsagnir vegna umsókna um vistunarmat.

Vakthafandi ráðgjafi. Félagsráðgjafar og sálfræðingar á vakt sinna erindum sem berast og þola ekki bið.

Ýmis stuðningur. Þjónustumiðstöðin býður upp á fleiri úrræði, allt eftir aðstæðum þeirra sem þangað leita. Má þar nefna liðveislu, tilsjón, stuðningsfjölskyldur, unglingasmiðjur, heimsendingu matar, hvíldarinnlagnir, dagvistun fyrir aldraða og fleira


Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is