Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Ókeypis í stæði fyrir visthæfar bifreiðar

02.08.2007

„Við viljum koma til móts við þá sem velja visthæfar bifreiðar í Reykjavík,“ sagði Gísli Marteinn Baldursson þegar hann sneri fyrstu bílastæðaskífunni í borginni en frá 2. ágúst er frítt í bílastæði fyrir visthæfar bifreiðar í Reykjavík í 90 mínútur í senn.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og Gísli Marteinn formaður umhverfisráðs Reykjavíkurborgar komu keyrandi á visthæfri bifreið á blaðamannafund þar sem sérstök bílastæðaskífa fyrir slíkar bifreiðar var tekin í notkun. Slíkar bifreiðar eru sparneytnar á eldsneyti og hafa minni útblástur koltvísýrings (CO2) en aðrar bifreiðar. „Visthæfar bifreiðar eru hljóðlátar og valda minni mengun en aðrar bifreiðar og því viljum við hjá Reykjavíkurborg styðja við slík farartæki,“ sagði Vilhjálmur.

Eitt af Grænu skrefunum í Reykjavík er að umbuna bílstjórum sem menga minna með því að aka um á visthæfum bifreiðum í borginni. Ókeypis verður í gjaldskyld stæði fyrir visthæfar bifreiðar nema í bílastæðahúsum og í stæði sem eru lokuð með hliði. Bílgreinasambandið hefur tekið saman lista yfir um það bil 20 gerðir af bifreiðum sem falla undir skilgreiningu Reykjavíkurborgar á visthæfum bifreiðum.

SkífanSérstök bílastæðaskífa hefur verið útbúin af þessu tilefni. Skífan er sett í framrúður visthæfra bifreiða og skal vísir hennar stilltur á þann tíma sem lagt er. Stöðuverðir geta þá séð hvað bifreiðinni hefur verið lagt lengi. Eigendur slíkra bifreiða geta nálgast skífurnar hjá bílaumboðunum. „Það er mikilvægt fyrir Bílgreinasambandið að leggja sitt af mörkum í þessum efnum,“ segir Egill Jóhannsson formaður sambandsins.

„Mér líst ágætlega á þetta,“ segir Kolbrún Jónatansdóttir framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs og undir það taka Albert Heimisson og Ásbjörn Georgesson sem starfa hjá sjóðnum. „Þetta er þróun í rétta átt,“ segir Asbjörn

Visthæfar bifreiðar eru skilgreindar á eftirfarandi hátt en fjórtán slíkar voru sýndar á blaðamannafundinum.

Bensínbílar: Eyðsla í blönduðum akstri er 5,0L/100km eða minna og CO2 útblástur að hámarki 120 g/km.
Díselbílar: Eyðsla í blönduðum akstri er 4,5L/100km eða minna og CO2 útblástur að hámarki 120 g/km.
Aðrir orkugjafar: Rafmagns, metan- og vetnisbílar. Tvíorkubílar (hybrid) sem nota t.d. metan/bensín eða etanól/bensín og eyðsla fer ekki yfir 5,0L/100km í blönduðum akstri og CO2 útblástur að hámarki 120 g/km.

Tenglar og nánari upplýsingar:
Listi Bílgreinasambandsins yfir visthæfar bifreiðar

www.reykjavik.is,
www.umhverfissvid.is,
www.bgs.is

Fréttatilkynning Reykjavíkurborgar

Lógó fyrir visthæfar bifreiðar

Mynd af bílastæðaskífunni