Myndlistarsýning leikskólabarna í Breiðholti
07.05.2007

Myndlistarsýning leikskólabarna á Bakkaborg, Arnarborg og Fálkaborg verður opnuð með viðhöfn kl. 10:00 á þriðjudagsmorgun í göngugötunni í Mjódd. Formaður leikskólaráðs Reykjavíkur Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir opnar sýninguna og síðan verða skemmtiatriði fyrir börnin. Sýningin verður opin í hálfan mánuð.