Verðlaun fyrir hugmynd að ímyndarmerki fyrir Barnamenningarhátíð Reykjavíkurborgar
10.03.2010
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, afhenti í dag Ingu Birnu Ísdal Gunnarsdóttur, nemanda í 2. bekk í Foldaskóla verðlaun fyrir bestu teikninguna í samkeppni um ímyndarmerki fyrir Barnamenningarhátíð Reykjavíkurborgar sem haldin verður í apríl nk.
Undanfarna mánuði hefur staðið yfir samkeppni um ímyndarmerki Barnamenningarhátíðarinnar og tóku um 500 börn frá leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum borgarinnar þátt. Inga Birna teiknaði upplitsdjarfan og skemmtilega forvitinn fugl. Hann flýgur líka um háloftin - rétt eins og hugmyndaflug barna. Hún fékk verðlaunaskjal, fjölskylduárskort í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og vandaðar myndlistarvörur.
Barnamenningarhátíðin verður haldin dagana 19 - 25. apríl og mun fjalla um menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn. Meðal annars verður fjallað um matarmenningu og málþing, íþróttir og inniveru, leiklist og listdans og í rauninni alla fleti menningar, bara að það sé skýr tenging við börn og barnamenningu. Hátíðin fer fram víðsvegar um borgina; ofan í sundlaugum, uppi í Esjuhlíðum, á skólalóðum, á öldum ljósvakans og á götum úti.
Nokkur atriði á Barnamenningarhátíð 2010
Upphafsatriði BMH verður skrúðganga 4.-bekkinga í Reykjavík. Gengið verður frá BSÍ yfir göngubrúna (sem nýverið fékk viðurkenningu) og um Hljómskálagarðinn. Hver skóli fær ákveðinn þemalit til að vinna með og er búist við litríkri og fjörugri skrúðgöngu.
Fríkirkjuvegur 11 verður Ævintýrahöllin. Barnamenningarhátíð 2010 hefur fengið til afnota hið fallega hús að Fríkirkjuvegi 11. Þar verður mikil starfsemi alla vikuna sem hátíðin stendur yfir, tónleikar og fjölbreytilegar smiðjur og - síðast en ekki síst - þar fá börn tækifæri til að halda myndlistarsýningar og kynna það sem þau eru að fást við.
Norræna húsið verður með viðamikla dagskrá alla vikuna. Þar verður m.a. barnabókahátíðin Mýrin og Tilraunaland þar sem vísindin lifna við í Vatnsmýrinni.
Á BMH er lögð mikil áhersla á samstarf. Skemmtilegt dæmi um verkefni af þessu tagi er myndlistarsýning sem leikskólinn Vesturborg heldur á botni Vesturbæjarlaugarinnar. Þannig þurfa gestir sýningarinnar að kafa eftir listinni.
Í Seljahverfi verður Vegur forvitninnar sem er samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands og skóla, frístundaheimila, félagsmiðstöðva og leikskóla í Seljahverfi. Þessar stofnanir breytast í listbúðir. Hvert barn rekur sig eftir fjársjóðskorti um spennandi staði í hverfinu. Þetta er stórt verkefni, með þátttöku 270 barna.
Dindilyndi: Verði gjafagagnstreymi! Myndlistarskóli Reykjavíkur verður með mikla listasmiðju í Listasafni Íslands alla vikuna. Magga Stína, Kristín Ómars, Megas, Hilmar Örn Hilmarsson og margir fleiri spennandi listamenn vinna sýningu á göngum safnsins út frá hugmyndum barna um dýr og bústaði þeirra. Í húsinu verða margar spennandi og skemmtilegar smiðjur.
Skákakademía verður starfrækt í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar verður vitaskuld mikið teflt en einnig verður sýning tengd skákíþróttinni.
Ferðafélag Íslands ætlar að halda Esjudag barna laugardaginn 24. apríl. Gönguferðir, ratleikir, leikþættir, heitt kakó og lummur í hlíðum Esjunnar.
Lokaatriði Barnamenningarhátíðar verða tónleikar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum með lögunum af Vísnabókarplötunum tveimur sem komu út á áttunda áratugnum. Það er Gunnar Þórðarson sem útsetur tónlistina og stjórnar þessum tónleikum.
Þetta er aðeins brotabrot af því sem í boði verður á Barnamenningarhátíð í apríl, nánari dagskrá verður kynnt síðar.