Heimsfaraldur inflúensu - viðbragðsáætlun borgaryfirvalda
21.10.2009
Borgaryfirvöld hafa gert heildar viðbragðsáætlun fyrir starfsemi borgarinnar í tengslum við heimsfaraldur inflúensu. Áætlunin er gerð í samræmi við tilmæli sóttvarnarlæknis og almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra. Auk viðbragðsáætlunar fyrir starfsemi borgarinnar í heild hafa einstök svið, skrifstofur og starfsstöðvar gert áætlanir um viðbrögð við afleiðingum flensunnar á viðkomandi starfsemi. Í viðbragðsáætlun Reykjavíkurborgar er m.a. lögð áhersla á að styrkja sóttvarnir á vinnustöðum, skipuleggja aðgerðir til að mæta auknum forföllum á vinnustöðum og tryggja viðkvæma grunnþjónustu, t.a.m. við fatlaða og aldraða. Viðbragðsáætlunin, sem samþykkt var í borgarráði 24. september sl. er birt á vefnum til upplýsinga fyrir íbúa og starfsmenn borgarinnar.
Áætlunina má nálgast hér: Viðbragðsáætlun borgaryfirvalda. (pdf 740 KB)
Þeir sem villja fylgjast nánar með fyrirmælum og upplýsingum sóttvarnalæknis og almannavarna er bent á: www.influensa.is, www.almannavarnir.is eða www.landlaeknir.is.