1,2 og Reykjavík tilnefnt til Eurocities-verðlauna
11.09.2008

Íbúasamráðsverkefni Reykjavíkurborgar undir yfirskriftinni 1,2 og Reykjavík hefur verið tilnefnt til verðlauna Eurocities – samtakanna í flokknum „Þátttaka” (Participation) að því er fram kom í kynningarbréfi borgarstjóra á fundi borgarráðs í morgun. Þrjú verkefni eru tilnefnd til verðlauna samtakanna í jafn mörgum flokkum í ár. Verðlaunin verða afhent á aðalfundi Eruocities – samtakanna í Haag í Hollandi þann 26. nóvember nk.
1,2 og Reykjavík er nýsköpunarverkefni og á sér ekki hliðstæðu í öðrum Evrópulöndum.
1,2 og Reykjavík var formlega hleypt af stokkunum í ársbyrjun. Óskað var eftir ábendingum um smærri nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni eftir tveimur leiðum, á tímabilinu frá 29. febrúar til 12. apríl. Annars vegar kallaði stýrihópur í hverju hverfi eftir ábendingum frá íbúum. Hins vegar færði almenningur ábendingar/hugmyndir inn á sérstakan ábendingarvef átaksins.
Viðbrögð fóru langt fram úr væntingum borgaryfirvalda. Alls var 2.281 ábending færð inn á vefinn á tímabilinu frá 28. febrúar til 29. júlí. Samtals voru greidd 16.347 atkvæði um einstaka ábendingar á sama tíma. Hundruð annarra ábendinga í ýmsu formi frá íbúum á öllum aldri skiluðu sér í gegnum stýrihópa í hverfunum.
Í kjölfar samráðsfunda borgarstjóra með íbúum sendu stýrihóparnir borgarstjóra óskalista um tíu nýframkvæmdir í hverju hverfi til borgarinnar. Farið var yfir listana og komið til móts við íbúa eins og kostur var hverju sinni. Bæklingur með upplýsingum um efndir samráðsins var stendur inn á öll heimili í borginni þann 18. júlí síðastliðinn.
1,2 og Reykjavík er tilefnt til Eurocities – verðlauna í flokknum „Þátttaka (Participation)”. Þrjú verkefni af 17 hlutu tilnefningu í ofangreindum flokki. Hin tvö verkefninu eru „Citizen Participation and Social Reequilibrium in the City of Madrid” og „Udecide – Participatory Budgeting (PB) in Newcastle” frá samnefndum borgum. Tilnefningar í flokknum „Samvinna (Cooperation)” hlutu verkefni frá borgunum Ghent, Istanbul og Lublin. Tilnefningar í flokknum „Nýsköpun (Innovation)” hlutu verkefni frá borgunum Belfast, Espoo og Utrecht.
Eins og áður segir verða Eurocities – verðlaun í hverjum ofangreindra flokka afhend við hátíðlega athöfn á aðalfundi Eruocities – samtakanna í Haag í Hollandi þann 26. nóvember nk. Eurocities eru samtök á annað hundrað borga í meira en 30 Evrópulöndum. Eitt af meginmarkmiðum samtakanna er að stuðla að upplýsingamiðlun á sviði stjórnsýslu og stjórnunar milli stærstu borga Evrópu.