Vinningstillaga SPITAL, sem og hinar tillögurnar fjórar í hönnunarsamkeppninni, verða almenningi til sýnis á Háskólatorgi frá og með deginum í dag, 9. júlí, og fram eftir ágústmánuði.Næstu skrefHönnunarsamkeppnin er síðasta verk verkefnisstjórnar um nýjan Landspítala því um miðjan júní 2010 samþykkti Alþingi lög um stofnun opinbers hlutafélags sem standa mun að undirbúningi og útboði á byggingu nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Félagið, sem er að taka til starfa, fær lokaskýrslu verkefnisstjórnar þar sem m.a. er lagt til að samið verði við SPITAL um forhönnun bygginga og skipulagsmál en forhönnun og útboðsgögn vegna framkvæmda eiga að liggja fyrir vorið 2011. Gert er ráð fyrir alútboði og að ríkið taki bygginguna á langtímaleigu til allt að 40 ára þegar byggingarverktaki hefur lokið umsömdu verki.
Samkvæmt áætlunum verkefnisstjórnar, sem fékk heimild heilbrigðisráðherra til að vinna verkefnið áfram í framhaldi af viljayfirlýsingu við lífeyrissjóðina í nóvember 2009, ættu jarðvegsframkvæmdir að geta hafist sumarið 2011.
DómnefndinÍ dómnefnd hönnunarsamkeppninnar, sem skipuð var af heilbrigðisráðherra, áttu sæti
Guðrún Ágústsdóttir, fv. forseti borgarstjórnar og formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur, sem jafnframt var formaður nefndarinnar,
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi forseti borgarstjórnar,
Anna Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala,
Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala,
Sigurlaug Ingibjörg Lövdahl, skrifstofustjóri framkvæmda- og tæknisviðs Háskóla Íslands,
Aðalsteinn Pálssonverkfræðingur og arkitektarnir
Finnur Björgvinsson, Helgi Hjálmarssonog
Sigríður Ólafsdóttir. Ritari dómnefndar var
Ásdís Ingþórsdóttirarkitekt og trúnaðar- og umsjónarmaður var
A. Katrín Arnórsdóttir, verkefnastjóri hjá Ríkiskaupum.