Aftur á forsíðu borgarhlutans.
 Hausthátíð
 Laugardalsvöllur
Laugardalshöll

Hverfisráð

Hverfisráð í Reykjavík starfa í umboði borgarráðs. Samkvæmt samþykkt fyrir Hverfisráð Reykjavíkurborgar er hlutverk hverfisráðs að stuðla að samstarfi innan hverfis, gera tillögur til borgarráðs og móta stefnu út frá þeim. Hverfisráð getur einnig gert tillögur um að þjónusta borgarstofnana í einstökum hverfum sé samræmd.

Hverfisráð eru vettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda og eru virkir þátttakendur í allri stefnumörkun hverfanna. Þannig eru hverfisráðin ráðgefandi fyrir starfsemi þjónustumiðstöðva í hverfum. Hverfisráð stuðla að kynningu skipulags, framkvæmda og þjónustu borgarstofnana í hverfum og beita sér fyrir því að samráð verði haft við íbúa allt eftir eðli máls hverju sinni.

Hverfisráð halda opna fundi að minnsta kosti einu sinni á ári með íbúum. Þjónustumiðstöð sér um undirbúning funda.

Hverfisráð eru skipuð 5 fulltrúum kosnum af borgarstjórn og jafn mörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna nefndarmanna. Kjörtímabil hverfisráða er hið sama og borgarstjórnar.

 


Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is