Aftur á forsíðu borgarhlutans.
 Hausthátíð
 Laugardalsvöllur
Laugardalshöll

Dagforeldar

Menntasvið Reykjavíkur veitir starfsleyfi til dagforeldra og sinnir lögbundnu eftirliti með þeirri starfsemi eins og kveðið er á um í reglugerð félagsmálaráðuneytisins nr. 907 / 2005.  Eftirlit með dagforeldrum felst í reglubundnum heimsóknum, a.m.k. þrisvar á ári samkvæmt reglugerð.

Athygli er vakin á því að þrátt fyrir reglubundið eftirlit með starfsemi dagforeldra hafa foreldrar yfirleitt besta aðstöðu til að fylgjast með starfsemi þeirra þar sem þeir eru í daglegu sambandi við þá. Ef óánægja kemur upp hjá foreldrum með umönnun eða aðbúnað barns eru þeir hvattir til að taka málið upp við dagforeldrið. Ef það ber ekki árangur er hægt að hafa samband við daggæsluráðgjafa á þjónustumiðstöð og leita eftir ráðgjöf eða leggja fram kvörtun. Daggæsluráðgjafi Þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis er Sigríður Hjörleifsdóttir félagsráðgjafi.

Það skal tekið fram að dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi og ákvarða sína gjaldskrá sjálfir. Margir dagforeldrar gera skriflegan vistunarsamning við foreldra þar sem kveðið er á um ýmis atriði varðandi starfsemina. Hagsmunafélag dagforeldra í Reykjavík er Barnavistun en þar er ekki félagaskylda. 

 


Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is