Íþrótta- og tómstundasvið

Um ÍTR

Bæjarháls 1

ÍTR
Bæjarhálsi 1, 4. hæð
110 Reykjavík
Sími: 411 5000
Netfang: itr@itr.is

Uppbygging þjónustu í frítímanum er ein af kröfum nútímans. Þar á að vera vettvangur tómstunda, menntunar, menningar og uppeldis undir handleiðslu hæfra starfsmanna. Íþrótta- og tómstundasvið gegnir þar mikilvægu hlutverki, svo sem að bregðast við væntingum fólks um aukin lífsgæði og öruggara samfélag. Það sem fólk tekur sér fyrir hendur í tómstundum á að vera þroskandi og veita ánægju og það á að skipta máli fyrir einstaklinginn og samfélagið.

Starfsemi ÍTR er gríðarlega fjölþætt og margbreytileg. Borgarbúar nýta starfsemina vel og stofnunin hefur notið þess undanfarin ár að búa við meðbyr og velvilja. Tilraunir til að bæta og auka þjónustuna hafa mælst vel fyrir. Stefnumótun ÍTR hefur fyrst og fremst verið unnin fyrir einstaka málaflokka en með tilkomu árangursstjórnunar og samhæfðs árangursmats, skorkortsins, verður nú mun auðveldara að skilgreina starfsemina í heild.

Virk þátttaka í þróunarvinnu er hluti af því að móta ÍTR sem lifandi og skilvirka stofnun með sterka ímynd. ÍTR vill geta átt samstarf við aðrar stofnanir og félög og þann faghóp sem er að myndast í landinu um störf á sviði tómstunda- og íþróttamála. ÍTR hefur haft frumkvæði að samstarfi á þessu sviði og hefur það gefist vel. Sóknarfæri stofnunarinnar byggjast umfram annað á nálægð við viðskiptavini, möguleikum til samþættingar og hagræðingar í rekstri.

Í jafnréttisstefnu ÍTR er lögð áhersla á að bæði karlar og konur fái tækifæri og möguleika til að taka að sér mikilvæg verkefni og stofnunin leggur sitt af mörkum til að gera starfsmönnum sínum kleift að samræma atvinnu- og einkalíf. Það er hagsmunamál ÍTR að starfsfólkið sé áhugasamt og ánægt og að þekking og reynsla allra njóti sín sem best og endurspeglist í þeirri þjónustu sem ÍTR veitir. Þannig uppfyllir ÍTR sem best hlutverk sitt gagnvart borgarbúum.

Starfsáætlun ÍTR 2008
Meginstefna og starfsáherslur ÍTR 2005-2010
Starfsskrá skrifstofu tómstundamála - ÍTR


Bæjarháls 1

Íþrótta- og tómstundasvið
Reykjavíkur
Bæjarhálsi 1
Sími: 411 5000
itr@itr.is
Upplýsingar um ÍTR

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is