Ungmennaráð

Ungmennaráð hafa starfað í öllum hverfum Reykjavíkur síðan haustið 2001. Fulltrúar í Ungmennaráðum koma úr hópi 13 til 18 ára nemenda í grunn- og framhaldsskólum. Hver skóli á tvo fulltrúa í sínu hverfaráði. Markmiðið með stofnun Ungmennaráða er meðal annars að skapa vettvang og leiðir til þess að gera ungu fólki yngra en 18 ára, kleift að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila. Einnig að veita þátttakendum í ráðunum fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum.
Ungmennaráð Miðborgar sitja fulltrúar úr Austurbæjarskóla, Hlíðaskóla, Háteigsskóla og Menntaskólann við Hamrahlíð. Ungmennaráðin funda einu sinni á tveggja vikna fresti. Viðfangsefni þessa funda hafa meðal annars verið samgöngur í hverfinu, skólinn, félagslíf, lög og reglur varðandi þennan aldurshóp í samfélaginu og alþjóðleg samskipti. Fastur liður hjá ungmennaráðunum er árlegur fundur með borgarstjórn en á þeim fundi koma fulltrúar með ýmsar tillögur að úrbótum í þeirra hverfi og borginni allri.
Nemendur í Miðborg og Hlíðum geta leitað til ungmennaráðs erindi og ráða. Netfang ráðsins er: ung.midbaer@itr.is
Fulltrúar Ungmennaráðs Miðborgar og Hlíða
Birta Hrund Ingadóttir, Austurbæjarskóli
Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, Háteigsskóli
Bryndís Þorleifsdóttir, Háteigsskóli
Stefán Bjarki, Hlíðaskóli
Eiríkur Erlingsson, Tjarnaskóli
Hannah Bryndís Proppé Bailey, Tjarnaskóli
Daníel Gylfason, Menntaskólinn við Hamrahlíð
Ingólfur Daníel Árnason, Menntaskólinn við Hamrahlíð
Einar Karl Gunnarsson, Menntaskólinn við Hamrahlíð