Rey cup hófst í morgun
22.07.2010
Alþjóðlega knattspyrnuhátíðin Rey Cup var sett í gær en fyrstu leikirnir hófust kl. 8.00 í morgun. Það eru vel á annað þúsund knattspyrnuiðkendur úr 3. og 4. flokki kvenna og karla sem taka þátt í mótinu í ár. Knattspyrnufélagið Þróttur á veg og vanda að þessari glæsilegu hátíð sem lýkur með úrslitaleikjum í Laugardalnum á sunnudag.
Í gær var einnig undirritaður nýr samningur milli Reykjavíkurbogar og Þróttar um Rey Cup, Alþjóðlegu knattspyrnuhátíðina í Reykjavík, en hátíðin er orðin einn stærsti íþróttaviðburður landsins.
Nánari upplýsingar um Rey Cup er að finna á vef mótsins.