Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Þjóðaratkvæðagreiðsla 6. mars 2010 um gildi laga nr. 1/2010

Kjörstaðir í Reykjavík

Í Reykjavíkurkjördæmi suður:                 Í Reykjavíkurkjördæmi norður:
Hagaskóli                                                         Ráðhús
Hlíðaskóli                                                          Kjarvalsstaðir
Breiðagerðisskóli                                             Laugardalshöll
Ölduselsskóli                                                    Íþróttamiðstöðin í Grafarvogi
Íþróttamiðstöðin Austurbergi                           Borgaskóli
Árbæjarskóli                                                    Ingunnarskóli
Ingunnarskóli                                                   Klébergsskóli

Athugið að Ingunnarskóli er kjörstaður í báðum kjördæmunum!

Kjörfundur hefst laugardaginn 6. mars kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00. Sérstök athygli kjósenda er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.

Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður mun hafa aðsetur í Hagaskóla á kjördegi og þar verða atkvæði talin.

Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður mun hafa aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur á kjördegi og þar verða atkvæði talin.

Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður

Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars nk. liggja frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur frá 26. febrúar nk. fram á kjördag. Vakin er athygli á því að hægt er að fá upplýsingar um hvar kjósendur eru á kjörskrá á vefnum www.kosning.is.
Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra eru á kjörskrá. Athugasemdum vegna kjörskráa í Reykjavíkurkjördæmum skal beint til skrifstofu borgarstjórnar, Ráðhúsi Reykjavíkur, sími 411 4700, netfang kosningar@reykjavik.is. Þar eru jafnframt veittar nánari upplýsingar. Borgarráð úrskurðar um athugasemdir vegna skráningar í kjörskrá.

Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður
Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður
Skrifstofa borgarstjórnar