Fréttir
Dagana 28.-29. maí stendur yfir handverkssýning í félagsmiðstöðinni Hraunbæ 105. Á sýningunni er að finna handverk sem
unnið hefur verið í vetur í félagsmiðstöðinni af eldri borgunum.
Hverfisráð Árbæjar hefur gert samkomulag við foreldraráð og stúlkur í 3. flokki kvenna hjá knattspyrnudeild Fylkis.
Samkomulagið felur í sér að þær að sjá um hreinsun við stofnbrautir í Árbæjahverfi í sumar.
Samstarf félagsmiðstöðvarinnar Hraunbæ 105 og Ártúnsskóla heldur áfram. Um daginn buðu nemendur Ártúnsskóla þátttakendum á tálgunámskeiðinu í grenndarskóginn og lásu m.a. fyrir þau ljóð og gáfu þeim eldbakað brauð og kakó í skóginum.
Nú var komið að því að bjóða 5 nemendum í 5 bekk skólans í heimsókn í Hraunbæ 105 þar sem hópurinn hittist einu sinni í viku.