Fréttir
Í dag þann 1.september breytist útivistartími barna samkvæmt reglum um útivistartíma barna og ungmenna.
Vetrartíminn tekur nú við sumartímanum og sá tími sem börn mega vera úti á kvöldin styttist. Frá 1. september til 1. maí mega börn 12 ára og yngri vera úti til kl. 20 en 13-16 ára mega vera úti til kl. 22.
Jón Gnarr, borgarstjóri, heimsótti Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts þann 9.júlí 2010 og átti þar ágætan fund með starfsfólki stöðvarinnar, fulltrúnum frá grunnskólunum sjö, leikskólunum ellefu, íþróttafélögunum Fylki og Fram, þremur íbúasamtökum á svæðinu, ÍTR, hverfaráðunum tveimur, lögreglunni, kirkjunnar mönnum og Heilsugæslunni Árbæ.
Haustmarkaður verður haldinn á Árbæjarsafni sunnudaginn 29. ágúst.
Fólk getur komið með grænmeti, sultur, handverk eða annað skemmtilegt og selt á markaðnum. Það kostar ekkert að vera með.