Límmiðinn Ryklaus Reykjavík

26.10.2007

Reykjavíkurborg hefur gefið út límmiða sem á er ritað: Ryklaus Reykjavík. Límmiðinn er liður í víðtækum aðgerðum borgarinnar til að draga úr svifryksmengun. Hann er ætlaður bifreiðum sem aka um á góðum naglalausum vetrardekkjum.

Sex atriði vinnast við það að draga úr notkun nagladekkja í borginni: Minna slit á götum, minni svifryksmengun, lægri kostnaður við hreinsun gatna og niðurfalla, minni eyðsla eldsneytis, minni umferðarhávaði og færri innlagnir þeirra sem eru með astma eða viðkvæm öndunarfæri. Límmiðanum verður m.a. dreift á dekkjaverkstæði og í bílaumboð. Ökumönnum stendur til boða úrval af góðum vetrardekkjum sem ekki  eru negld t.d. loftbóludekk, harðkornadekk, harðskeljadekk og heilsársdekk. 

„Fyrirhyggja og framsýni eru lykilþættir í vetrarakstri,“ segir Sigríður Ólafsdóttir ökukennari og starfsmaður Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar. Hún segir ráðlegur fólki að nota góð vetrardekk í stað nagladekkja og gæta að því að a.m.k. einn þriðji af munstrinu sé til staðar. „Mikilvægt er að hreinsa bíldekkin reglulega og gíra bíla niður í hálku,“ segir hún

Tenglar:

Vetrarakstur

Veggspjald um svifryk og nagladekk

Tillögur umhverfisráðs vegna svifryks

Mótvægisaðgerðir gegn svifryki


Umhverfis-og samgöngusvið
Reykjavíkurborgar
Borgartúni 12-14
Sími: 411 8500
Afgreiðsla - 8:20 - 16:15
umhverfissvid@reykjavik.is
Upplýsingar um sviðið

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is