Um sviðið

Hlutverk sviðsins
Hlutverk skipulags- og byggingarsviðs er að veita borgarbúum, borgarfulltrúum, ráðgjöfum, hönnuðum, byggingarverktökum og öðrum þeim sem á þurfa að halda, góða þjónustu, ráðgjöf og upplýsingar um skipulags- og byggingarmál. Sviðið er jafnframt stefnumótandi í skipulags- og byggingarmálum borgarinnar í samvinnu við skipulagsráð.
Starfsmenn skipulags- og byggingarsviðs eru alls um 45 með menntun og reynslu m.a. í skipulagsfræðum, arkitektúr, verkfræði og byggingartækni. Sviðinu er skipt í tvær einingar: skrifstofu skipulagsstjóra og embætti byggingarfulltrúa. Skipulagsstjóri er yfirmaður sviðsins.
Leiðarljós skipulags- og byggingarsviðs:
1. Að tekið sé tillit til hagsmuna núverandi íbúa og komandi kynslóða við skipulag og uppbyggingu í Reykjavík
2. Að Reykvíkingar njóti góðrar þjónustu og vandaðrar stjórnsýslu hvað varðar skipulags- og byggingarmál.
3. Að starfsfólk hafi ánægju af að taka þátt í uppbyggingu og viðhaldi borgarinnar og metnað til að veita Reykvíkingum sem besta þjónustu á því sviði.