Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Karlasmiðja

Karlasmiðja

Karlasmiðja er fyrir karlmenn á aldrinum 25 til 45 ára sem hafa verið atvinnulausir til lengri tíma. Miðað er við að þeir hafi þegið fjárhagslegan stuðning frá Reykjavíkurborg. Umsækjendur mega ekki vera háðir neyslu vímuefna. 

Karlasmiðja er 18 mánaða endurhæfing þar sem markmiðið er að bæta lífsgæði nemenda.
Endurhæfingin er þríþætt: sjálfsefling, uppbygging og starfs- og/eða námsundirbúningur.

Kennsla fer fram í Námsflokkum Reykjavíkur alla virka daga og skuldbinda þátttakendur sig til að mæta 100%. Auk þess eru starfsmenn Velferðarsviðs Reykjaborgar með stuðning og eftirfylgd við þátttakendur í Karlasmiðju.

Endurhæfingartímanum er skipt upp í þrjár annari, sex mánuði hver. Kenndar eru verklegar og bóklegar námsgreinar og miðast kennslan við getu hvers og eins, eins og unnt er. Stýrihópur fundar mánaðarlega og fer yfir framvindu endurhæfingar. Í honum  sitja ráðgjafar frá hverri þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar, fulltrúi frá Velferðarsviði og fulltrúi frá TR.

Sótt er um í Karlasmiðju hjá félagsráðgjafa/ráðgjafa á þjónustumiðstöðvum Reykjavíkur.

Stundaskrá karlasmiðjunnar vorönn 2010