Kvennasmiðja
Kvennasmiðjan er verkefni um endurhæfingu einstæðra mæðra sem unnið er í samstarfi við Tryggingarstofnun ríkisins, Velferðarsvið og Þjónustu- og rekstrarsvið Reykjavíkurborgar. Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts er móðurstöð verkefnisins. Ella Kristín Karlsdóttir hefur umsjón með verkefninu.
Markmið
Að styrkja einstæður mæður sem ekki hafa verið á vinnumarkaði um nokkurt skeið og styðja þær til sjálfshjálpar.
Leiðir
Í hverjum hópi er 16-20 konur. Kennt er 4-5 sinnum í viku í 18 mánuði.
Námið er þríþætt; skapandi, hagnýtt og sjálfstyrkjandi
Kenndar eru bæði bóklegar og verklegar greinar
Kennsla fer fram hjá Námsflokkum Reykjavíkur og Hússtjórnarskóla Reykjavíkur
Fyrsti hópurinn fór af stað í apríl 2001. Sá tólfti byrjaði í desember 2008, en tveir eru í gangi núna.
Markmiðið er að hafa alltaf tvo hópa í gangi.
Verkefnið er í stöðugri þróun
Fjármögnun
Tryggingarstofnun greiðir konunum endurhæfingarlífeyri á meðan þær sækja Kvennasmiðjuna. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Þjónustu- og rekstrarsvið annast og greiða alla endurhæfinguna.
Árangursmat
Reglulegt mat er gert á verkefninu hjá Velferðarsviði. Kvennasmiðjukonur eru almennt ánægðar með að hafa fengið þetta tækifæri til náms og endurhæfingar.
Stundaskrá kvennasmiðjunnar 12 á vorönn 2010
Stundaskrá kvennasmiðjunnar 13 á vorönn 2010