Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Grunnám

Grunnnám

Námsflokkarnir bjóða fólki eldra en 16 ára upp á nám í námsefni efstu bekkja grunnskóla í ensku, íslensku og stærðfræði. Áhersla er lögð á að sníða námið að þörfum hvers og eins. Þannig getur fólk hafið nám hvenær sem er vetrar, tekið það á þeim hraða sem því hentar og lokið því hvenær sem er. Mikil áhersla er lögð á námstækni. Próf eru í boði, en eru valfrjáls.

Námið er ætlað þeim sem:

  • eru 16-18 ára og hafa ekki lokið grunnskólaprófi (þessi hópur verður að taka próf)
  • eru eldri en 18 ára og ekki hafa lokið grunnskólaprófi
  • vilja rifja upp grunnskólanámið
  • vilja geta aðstoðað börnin sín betur við heimanámið

Enska er kennd á mánudögum og miðvikudögum kl. 15:15 - 17:15.
Stærðfræði  grunnur er kennd á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13:00 - 15:00 eða 17:15 - 19:15.
Stærðfræði framhald er kennd á þriðjudögum  og fimmtudögum kl. 15:15 - 17:15. 
Íslenska grunnur er kennd á mánudögum og miðvikudögum kl. 13:00 - 15.00.
Íslenska framhald er kennd á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13:00 - 15:00.

Einnig er kennd félagsfræði á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15:15-17:15

Náms- og starfsráðgjafar kenna þeim sem stunda grunnnám í námstækni. 

Verð:
Eitt fag: 16.000
Tvö fög: 21.000
Þrjú fög: 26.000
 

Birt með fyrirvara um breytingar á tímum.