Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Um Námsflokka Reykjavíkur

Starfsemi Námsflokka Reykjavíkur

Námsflokkar Reykjavíkur voru stofnaðir árið 1939 og eru elsta fullorðinsfræðslustofnun landsins. Hlutverk þeirra er að sinna fullorðinsfræðslu og framfylgja félagslegri menntastefnu borgarinnar.

Námsflokkarnir sinna einkum þeim sem minnsta formlega menntun hafa. Það er gert á margvíslegan hátt, m.a. með náms- og starfsráðgjöf, sérkennslu í lestri og skrift, grunnskólanámi fyrir fólk eldra en 16 ára, undirbúningsnámi fyrir framhaldsskóla og ýmsum lengri og styttri fræðsluverkefnum sem flest eru unnin í samstarfi við aðra. Einnig sinna Námsflokkarnir íslenskukennslu fyrir útlendinga í samvinnu við aðrar fræðslustofnanir.

Stefna Námsflokkanna er að vera í sem mestu samstarfi við aðrar stofnanir Reykjavíkurborgar, aðrar menntastofnanir og við nágrannasveitarfélögin.

Námsflokkarnir vilja hvetja fólk til að auka við menntun sína og hjálpa því að finna námsleiðir við hæfi. Starfsfólk Námsflokkana veitir fúslega upplýsingar um þær námsleiðir sem standa fullorðnum Reykvíkingum til boða.

Staðsetning
Skrifstofa og kennsluhúsnæði Námsflokka Reykjavíkur eru í Mjódd, Þönglabakka 4,
á 2. hæð í sama húsi og skiptistöð strætó.
Skrifstofan er opin á mánud - fimmtud. kl. 9:00-15:00.

Skrifstofa forstöðumanns er í Mjódd.

Náms- og starfsráðgjöf fer fram á þjónustumiðstöðvum borgarinnar. Ráðgjafarnir hitta fólk á þjónustumiðstöð þeirra, en þjónustumiðstöðvarnar eru sex og þjóna Grafarvogi, Kjalarnessi, Árbæ og Grafarholti, Breiðholti, Háaleiti og Laugardal, Hlíðum og Miðborg og Vesturbænum.