Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Námstilboð Námsflokkanna

Nám er vinna sem þarf að skipuleggja

Námsflokkar Reykjavíkur bjóða Reykvíkingum eldri en 16 ára ókeypis náms- og starfsráðgjöf á þjónustumiðstöðvum borgarinnar.
Ráðgjöfin getur falist í eftirfarandi eftir þörfum hvers og eins:  

  • að meta styrkleika fólks og leggja fyrir áhugasviðspróf
  • að ráðleggja um námsleiðir utan og innan Námsflokkanna
  • að finna leiðir vegna sértækra námsörðugleika t.d. lestrarörðugleika
  • að finna leiðir til að fjármagna nám
  • að ráðleggja um námstækni
  • að kenna markmiðssetningu
  • að fylgjast með námsframvindu og hvetja til dáða
  • að aðstoða við gerð ferilskrár og starfsval


Elfa Huld Haraldsdóttir
náms- og starfsráðgjafi veitir ráðgjöf í Námsflokkum Reykjavíkur
Harpa Þórðardóttir
 náms- og starfsráðgjafi veitir ráðgjöf í Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness
Lilja Þorkelsdóttir
náms- og starfsráðgjafi veitir ráðgjöf í Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts og Þjónustumiðstöð Breiðholts
Sigrún Þórarinsdóttir
náms- og starfsráðgjafi veitir ráðgjöf í Þjónustumiðstöð Laugardals og Háleitis og Námsflokkum Reykjavíkur
Soffía Einarsdóttir
náms- og starsfráðgjafi veitir ráðgjöf í Þjónustumiðstöð Vesturbæjar í Vesturgarði, og Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða

Að skipuleggja nám sitt
Alla vinnu þarf að skipuleggja til að ná góðum afköstum. Nám er vinna og námsárangur er mjög háður því hve skipulega nemandi vinnur. Skipulagning dregur úr kvíða og vanlíðan og eykur frítíma.

Oft getur verið gagnlegt fyrir nemanda sem vill auka námsafköst sín að athuga fyrst hvernig hann eyðir tíma sínum, hverju hann þyrfti að breyta og gera sér síðan áætlun fyrir vikuna, þar sem ákveðinn tími er ætlaður í kennslustundir, til lesturs námsbóka, upprifjunar á glósum, til tómstundaiðkana, matar, hvíldar, svefns, skemmtana o.fl. Með slíka áætlun til hliðsjónar skipuleggur nemandi tíma sinn á raunsæjan hátt og setur upp tímatöflu sér til halds og trausts.

Mikilvægt er að velja nám við hæfi og ætla sér ekki um of. Gildir þetta bæði um fjölda námsgreina og stig. Þegar langt er liðið frá fyrri skólagöngu er oftast ráðlegt að rifja upp kjarnagreinar í áföngum 90 og 100 þ.e.a.s. íslensku, dönsku, ensku og stærðfræði. Stöðupróf eru lögð fyrir nemendur á þessu stigi í fyrstum kennslustundum annarinnar sem styðjast má við til endanlegrar ákvörðunar. Til þess að hafa gagn og gaman af náminu er góð undirstaða sú forsenda sem námið byggir á.