Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Sérkennsla

Sérkennsla

Í öllum grunnskólum Reykjavíkur stendur börnum til boða aðstoð vegna sértækra námsörðugleika, tilfinningalegra eða félagslegra örðugleika og/eða fötlunar. Allt að fimmtungur nemenda fær sérkennslu af einu eða öðru tagi á hverju skólaári, flestir vegna lestrar-og skriftarörðugleika. Á undanförnum árum hafa grunnskólar Reykjavíkur fengið sérstaka fjárúthlutun vegna barna með fatlanir og miklar sérþarfir í námi, m.a. vegna geðraskana og annarra alvarlegra hegðunarvandamála. Skólastjóri sér um að fylla út umsókn um fjárúthlutun ásamt greiningargögnum og senda til Menntasviðs. Úthlutað er í júní og endurskoðun úthlutunar fer fram í október.

pdfmynd Umsókn - Úthlutun fjármagns til grunnskóla í Reykjavík vegna mikið fatlaðra nemenda og nemenda með alvarlega samskipta- og hegðunarörðugleika eða geðraskanir.