Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Þjónustutrygging

Þjónustutrygging

Þjónustutrygging er tímabundin greiðsla til foreldra/forráðamanna þar til leikskólapláss býðst fyrir barn hjá leikskólum borgarinnar eða önnur dagvistun sem er niðurgreidd af Leikskólasviði, s.s. vistun hjá dagforeldri eða í sjálfstætt starfandi leikskóla.

Þjónustutrygging fellur niður þegar leikskólapláss eða önnur niðurgreidd þjónusta býðst fyrir barnið. Foreldrar/forráðamenn geta þó valið að nýta sér þjónustutryggingu í stað leikskólapláss eða þjónustu dagforeldris þar til barnið verður 24 mánaða.

Einstæðum foreldrum/forráðamönnum stendur til boða þjónustutrygging þegar barn nær 6 mánaða aldri en foreldrum/forráðamönnum í hjúskap eða sambúð þegar barn nær 9 mánaða aldri.

Skv. 2. tölulið A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, sbr. 2. gr. laga nr.  17..., teljaststyrkir sem foreldrar/forráðamenn fá frá sveitarfélögum til að annast barn heima, frá lokum fæðingarorlofs fram til þess að barnið hefur leikskólavistun eða grunnskólanám, ekki til tekna hjá móttakanda. Þ.e.a.s. gengið er út frá því að foreldri/forráðamaður sem vill annast barn sitt heima og fær styrk frá sveitarfélaginu, sé undanþeginn skattskyldu. Styrkurinn er engu að síður framtalsskyldur.

Gæti afi eða amma barnsins og foreldrar greiða þeim andvirði þjónustutryggingarinnar er sú greiðsla skattskyld.

Nýjar reglur um þjónustutryggingu sem taka gildi 1. janúar 2010.

Ábending til þeirra sem sækja um þjónustutryggingu eða breyta umsókn um þjónustutryggingu

Umsókn um þjónustutryggingu