Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Sérkennsla í leikskólum

Sérkennsla í leikskólum

Sérkennsla í leikskólum byggir á lögum um leikskóla frá 1994/6. kafla og reglugerða þar af lútandi, sem og samþykkta leikskólaráðs. Börn, sem vegna fötlunar, tilfinningalegra eða félagslegra erfiðleika þurfa sérstaka aðstoð og þjálfun, eiga rétt á henni í leikskólanum undir handleiðslu sérfræðinga.

Sérkennsluráðgjafar starfa á þjónustumiðstöðvum í hverjum borgarhluta. Þeir veita ráðgjöf, fræðslu og handleiðslu til foreldra, starfsfólks og stjórnenda leikskóla um umönnun, uppeldi og þjálfun barna með sérþarfir. Leikskólastjórar bera ábyrgð á umsóknum um stuðning fyrir börn í sínum skóla og senda hana til Leikskólasviðs. Umsóknum fylgja greiningarniðurstöður. Sérstakt úthlutunarteymi sér um að meta umsóknir á grundvelli greininga og úthlutar til leikskóla eða barna.

Úthlutað er frá Leikskólasviði vegna þriggja flokka en einnig er ákveðið fjármagn til sérkennslu sem leikskólarnir ráðstafa sjálfir vegna barna með minni háttar þroskaröskun
1) Vegna fatlaðra barna og barna með miklar sérþarfir  -  1. og 2. flokkur.  
2) Vegna barna með alvarlega hegðunar og tilfinningarlega erfiðleika - 3. flokkur.

Úthlutunum vegna einstaklingsmála í 1.,  2. og 3. flokki hefur fjölgað á síðustu árum og njóta jafnaði um 200 börn sérkennslu vegna fötlunar og mikilla sérþarfa.