Námsflokkar Reykjavíkur bjóða fullorðnum Reykvíkingum, 16 ára og eldri, ný tækifæri til náms, auk náms- og starfsráðgjafar. Lögð er áhersla á að kennsla sé einstaklingsmiðuð, við hæfi hvers og eins. Stefnt er að því að með aukinni menntun öðlist nemendur aukinn sjálfsstyrk og lífgæði.
Á þemadögunum var gert margt skemmtilegt. Meðal annars komu Dr. Sigmundur Guðbjarnason og Jóhanna Vilhjálmsdóttir og fluttu mjög athyglisverðan fyrirlestur um áhrif mataræðis á heilsuna.
Námsflokkar ReykjavíkurÞönglabakki 4, 109 ReykjavíkSími 411 7040