Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Grunnskólar

Grunnskólinn

Reykjavíkurborg rekur 39 grunnskóla, þar af þrjá sérskóla. Í þeim stunda  tæplega 14.000 börn og unglingar nám. Í borginni eru að auki sex sjálfstætt starfandi grunnskólar sem njóta framlaga frá borginni. Í skólastarfi er haft að leiðarljósi að börnum líði vel, að þeim fari stöðugt fram og að þau öðlist uppeldi og menntun fyrir líf og starf.

Fréttir

Verðlaunahafinn með móður sinni, borgarstjóra og félögum í Foldaskóla.

Nemandi í Foldaskóla fær verðlaun fyrir ímyndarmerki | 10.03.2010

Nemandi í 2. bekk í Foldaskóla, Inga Birna Ísdal Gunnarsdóttir, fékk í dag verðlaun fyrir ímyndarmerki Barnamenningarhátíðar sem hefst í Reykjavík 19. apríl. Undanfarna mánuði hefur staðið yfir samkeppni um merkið í skólum borgarinnar.

Kátir krakkar í Norðlingaskóla.

Aukin ánægja meðal foreldra með grunnskóla Reykjavíkur | 09.03.2010

Niðurstöður viðhorfskönnunar meðal foreldra grunnskólabarna í Reykjavík sýna vaxandi ánægju þeirra með skólann. Mikill meirihluti foreldra í borginni, eða 84 %, er ánægður með skólann sem barnið þeirra er í og er það aukning um sex prósentustig frá árinu 2008.

Drengur við nám.

8,8% nemenda í þriðja bekk þurfa stuðning í stærðfræði | 09.03.2010

Skimunarpróf í stærðfræði var lagt fyrir 3. bekkinga í 30 grunnskólum í nóvember 2009. Markmið þeirra er að finna þá nemendur sem eru líklegir til að lenda í vanda í stærðfræðinámi og bregðast við með einstaklingsáætlun eða sérkennslu.

Skoða allar fréttir



Börnin í borginni Brú - vettvangur um skólamál Brot af því besta Skoða stöðu grunnskóla Röskun á skólastarfi vegna óveðurs Munum eftir inflúensunni Öskudagsráðstefna Foreign languages