Grunnskólinn
Reykjavíkurborg rekur 39 grunnskóla, þar af þrjá sérskóla. Í þeim stunda tæplega 14.000 börn og unglingar nám. Í borginni eru að auki sex sjálfstætt starfandi grunnskólar sem njóta framlaga frá borginni. Í skólastarfi er haft að leiðarljósi að börnum líði vel, að þeim fari stöðugt fram og að þau öðlist uppeldi og menntun fyrir líf og starf.
Fréttir
Nýr skóli í Úlfarsárdal mun rúma allt skólastarf fyrir börn á aldrinum eins árs til tólf ára; leikskóla, grunnskóla og frístundastarf. Með þessu fyrirkomulagi verður leitað nýrra leiða til að auka nýbreytni og sveigjanleika í skólastarfi.
Menntaráð samþykkti á fundi sínum 27. janúar að hvetja alla grunnskóla í borginni til að efla fræðslu um tannvernd og tannhirðu með því að taka þátt í tannverndarvikunni 1. - 5. febrúar.
Fyrsta barnamenningarhátíð Reykjavíkur verður haldin vikuna 19. - 25. apríl. Markmiðið er að skapa vettvang til að gera barnamenningu sýnilega svo og menningarstarfsemi fyrir börn.
Skoða allar fréttir