Grunnskólinn
Reykjavíkurborg rekur 39 grunnskóla, þar af þrjá sérskóla. Í þeim stunda tæplega 14.000 börn og unglingar nám. Í borginni eru að auki sex sjálfstætt starfandi grunnskólar sem njóta framlaga frá borginni. Í skólastarfi er haft að leiðarljósi að börnum líði vel, að þeim fari stöðugt fram og að þau öðlist uppeldi og menntun fyrir líf og starf. Sjá lög um grunnskóla frá 1. júlí 2008.
Fréttir
Í samráði við foreldra barna í Vesturbæjarskóla, skólastjóra og stjórnendur frístundastarfs hefur verið ákveðið að færa frístundastarf yngstu bekkjardeilda inn í skólann.
Fyrsti skóladagurinn á þessu hausti fór vel af stað í Klébergsskóla og voru nemendur ánægðir að mæta aftur í skólann. Einn af yngri nemendunum hafði þetta á orði í miðri kennslustund í textílmennt: „Það er svo gaman í skólanum að ég vildi að ég ætti heima hérna“.
Færanlegar kennslustofur á skólalóð Vesturbæjarskóla eiga að leysa tímabundna húsnæðiseklu frístundaheimilis skólans. Nemendum við skólann hefur fjölgað talsvert milli ára og útlit fyrir að núverandi húsnæði rými ekki þann fjölda nemenda.
Skoða allar fréttir