Leikskólinn - fyrsta skólastigið
Leikskólinn er fyrsta skólastigið í íslensku skólakerfi og annast að ósk foreldra uppeldi, umönnun og menntun barna á leikskólaaldri. Í leikskólum borgarinnar er haft að leiðarljósi að börnin njóti bernsku sinnar, læri og þroskist í leik og samveru. Flestir leikskólar hafa markað sér sérstöðu með áherslu á ákveðna stefnu eða þætti í starfinu, s.s. samskipti, lestur og ritmál, stærðfræði, heimspeki, náttúru og umhverfisvernd.
Fréttir
Fimmtudaginn 4. mars stóð Leikskólsvið fyrir skemmtilegum og fróðlegum fræðslufundi um læsi og birtingarmyndir þess. Fundinn sátu á milli 60 og 70 manns, flestir frá leikskólum borgarinnar, en einnig starfsmenn Borgarbókasafns og annarra stofnana.
Á fræðslumorgni Leikskólasviðs þann 18. mars verða kynntar rannsóknir á viðhorfum og hugmyndum ungra barna í daglegu lífi og skólagöngu.
Fimmtudaginn 4. mars kl. 8:30- 11.00 verður haldinn fræðslufundur að Fríkirkjuvegi 1 um læsi og fjölbreyttar birtingarmyndir þess.
Skoða allar fréttir