Á fræðslumorgni Leikskólasviðs þann 18. mars verða kynntar rannsóknir á viðhorfum og hugmyndum ungra barna í daglegu lífi og skólagöngu.
Barnamenningarhátíð hefst í Reykjavík 19. apríl með mikilli skrúðgöngu í miðborginni. Grunnskólanemum í 4. bekk hefur verið boðið að taka þátt í opnunaratriði hátíðarinnar.
Nemendur í Sæmundarskóla hafa sett upp sýningu á verkum sínum á skrifstofu Menntasviðs. Þar má sjá verk úr endurnýttu efni, trémuni, mynsturverk og krítarteikningar. Sýningin stendur til 8. apríl.
Jafnrétti kynja frá landnámi til vorra daga er yfirskrift samstarfsverkefnis nokkurra skóla sem kynnt verður í grunnskólum Reykjavíkur á næstu vikum. Verkefnið hlaut hvatningarverðlaun menntaráðs.
Hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og frú Dorrit Moussaieff heimsóttu Norðlingaskóla í dag í tilefni þess að skólinn fékk Íslensku menntaverðlaunin á liðnu ári. Heimsóknin hófst í útikennslustofunni í Björnslundi þar sem Norðlingar una löngum stundum.
Fræðslufundur um læsi og birtingarmyndir þessFundað í Brúnni um samfellu í skólastarfi Velheppnuð öskudagsráðstefnaPoppað yfir eldi í útikennslunni Reykvískir kennarar ætla að fjölmenna á ráðstefnu á öskudag
Skoða allar fréttir