Þróun byggðar

Reykjavík er borg sem er í stöðugum vexti og þróun. Nýju aðalskipulagi er meðal annars ætlað að setja fram stefnu um ný byggingarsvæði, bæði fyrir íbúðir og atvinnuhúsnæði. Annað og ekki síður mikilvægt hlutverk nýs aðalskipulags er að endurskilgreina landnotkun og uppbyggingu innan núverandi byggðar, í takt við breyttar þarfir og væntingar í samfélaginu. Hér á þessari síðu eru tilnefnd nokkur svæði sem munu gegna lykil hlutverki í þróun og eflingu borgarinnar á næstu áratugum. Í endurskoðuninni er að sjálfsögðu horft til fleiri svæða en þessara og væntanlega munu fleiri svæði bætist á þennan lista eftir því sem vinnunni vindur fram.