Barnamenningarhátíð 2010

Barnamenningarhátíð í Reykjavík 19. – 25. apríl 2010
Ertu með hugmynd að verkefni?
Hægt er að sækja um aðstoð til framkvæmda verkefna fyrir Barnamenningarhátíð.
Umsækjendur eru sérstaklega hvattir til þess að leggja áherslu á samvinnuverkefni. Þá er átt við samvinnu í sínu víðasta samhengi svo sem milli stofnanna, einstaklinga, fagstétta, aldurshópa o.s.fv.
Tekið er á móti umsóknum til 8. mars og þarf eftirfarandi að koma fram:
Lýsing á viðburði – Kostnaðaráætlun - Hverjir skipuleggja / framkvæma verkefnið
Aðstoðin getur verið í ýmsu formi þar á meðal getur verið um takmörkuð fjárframlög til atriða að ræða og mun stjórn hátíðarinnar meta framlög á grundvelli framkvæmdar- og kostnaðaráætlana.
Tillögur að viðburðum og styrkumsóknir skal senda á verkefnisstjóra hátíðarinnar:
Guðríði Ingu Ingólfsdóttur og Skúla Gautason
gurry@visitreykjavik.is skuli.gautason@reykjavik.is
Barnamenningarhátíð verður haldin í Reykjavík á vordögum. Hátíðin er hugsuð fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri og fer fram víðsvegar um borgina; ofan í sundlaugum, uppi í Esjuhlíðum, á skólalóðum, á öldum ljósvakans og á götum úti.
Hátíðin fjallar um menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn. Hún getur innihaldið matarmenningu og málþing, íþróttir og inniveru, leiklist og listdans og í rauninni alla fleti menningar, bara að það sé skýr tenging við börn og barnamenningu.
Barnamenningarhátíð hefst mánudaginn 19. apríl og lýkur sunnudaginn 25. apríl. Í þessari viku er s-Sumardagurinn fyrsti, fimmtudaginn 22. apríl.
Þema hátíðarinnar 2010 er forvitni.
Æskilegt er að stærstur hluti hátíðarinnar verði í anda þátttökuhátíða á borð við Menningarnótt og Vetrarhátíð þar sem áhersla er lögð á aðgengi fyrir alla með ókeypis aðgangi að viðburðum. Ef nauðsynlegt er að krefjast aðgangseyris á einstaka viðburði þarf að stilla honum í hóf.
Höfuðborgarstofa hvetur alla sem áhuga hafa á því að efla barnamenningu, hverju nafni sem hún nefnist, að leggja lóð á vogarskálarnar. Þessi hátíð er ekki byggð upp á stórum viðburðum heldur mörgum smáum. Hún rúmar allar listgreinar og allt sem að börnum snýr.
Hlutverk Höfuðborgarstofu og stjórnar Barnamenningarhátíðar er að halda utan um alla almenna skipulagningu og samræma viðburði, standa að útgáfu dagskrárrits og annarrar kynningar á viðburðum hátíðarinnar. Viðburðirnir sem mynda dagskrá hátíðarinnar eru skapaðir og framkvæmdir af hugmyndaríku fólki út um alla borg.