Annasöm helgi á Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Aðalstræti.
19.04.2010
Gestafjöldi á Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Aðalstræti þrefaldaðist nú um helgina og minnti helst á góða júlí helgi. Opnunartími var lengdur og starfsfólk kallað út.
Rétt undir þrjúþúsund gestir heimsóttu miðstöðina til að fá upplýsingar og aðstoð af ýmsu tagi. Allir sem það vildu fengu Gestakort Reykjavíkur afhent sem veitir ókeypis aðgang að strætó, sundlaugum og söfnum í borginni. Að öllu jöfnu eru kortin seld en hafa verið gefin frá því á föstudag til að koma til móts við þá ferðamenn sem hér hafa verið innlyksa og var því framtaki afar vel tekið.
Starfsfólk Upplýsingamiðstöðvarinnar veitti því sérstaka eftirtekt hversu æðrulaust og jákvætt fólkið var sem sótti það heim um helgina. Þrátt fyrir að komast ekki af landi brott á ráðgerðum tíma var engin reiði eða pirringur í ferðamönnunum, þó svo sumir væru sannarlega áhyggjufullir. Þeir ferðamenn sem hafa þurft að lengja dvöl sína á landinu hafa nýtt tímann vel, farið í fjölmargar skoðunarferðir, skoðað söfn og kíkt í búðir.