Frístundir barna og unglinga

Skrifstofa tómstundamála hefur yfirumsjón með frístundastarfi ÍTR fyrir börn, unglinga og ungmenni. Leiðarljós starfseminnar eru að börnum og ungmennum standi til boða frístundastarf sem hefur uppeldis- og menntunargildi og tekur mið af aldri þeirra og þroska. Áhersla er lögð á virka þátttöku, reynslunám, lýðræði og jafnræði. Sérstaklega er hugað að því að virkja einstaklinga sem eiga undir högg að sækja vegna fötlunar eða félagslegra aðstæðna. Frístundastarf ÍTR er í eðli sínu forvarnarstarf þar sem unnið er með viðhorf og atferli barna og ungmenna í átt til heilbrigðs lífstíls og virkni í samfélaginu.
Starfsskrá skrifstofu tómstundamála er kjölfesta þess starfs sem fram fer á vegum skrifstofu tómstundamála hjá ÍTR.
Auk starfsemi á vegum skrifstofu tómstundamála sinnir ÍTR víðtæku samstarfi við hagsmunaaðila í íþrótta- og æskulýðsstarfi, veitir styrki til félaga og styrkir þátttöku barna og unglinga í starfsemi þeirra með Frístundakortinu.