Frístundakortið

Markmið og tilgangur Frístundakortsins er að öll börn og unglingar í Reykjavík 6-18 ára geti tekið þátt í uppbyggilegu frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. Frístundakortinu er ætlað að auka jöfnuð í samfélaginu og fjölbreytileika í iðkun íþrótta-, lista- og tómstundastarfsemi.
Meginskilyrði félaga sem gerast aðilar að Frístundakortinu er að starfsemin sé á forsendum uppeldislegar gilda og forvarna í víðum skilningi. Starfsemin fari fram undir leiðsögn hæfra starfsmanna og leiðbeinanda sem hæfir starfi með börnum og unglingum. Styrkhæf starfsemi þarf að vera í 10 vikur samfellt hið minnsta.
Styrkurinn er kr. 25.000 á barn á ári en ekki er um beingreiðslur til forráðamanna að ræða, heldur hafa þeir rétt til að ráðstafa tilgreindri upphæð í nafni barns síns til niðurgreiðslu á þátttöku- og æfingagjöldum.
Heimilt er að nýta styrkinn til niðurgreiðslu fleiri en einnar greinar en þó ekki fleiri en þriggja á hverri önn. Annirnar eru vorönn 1. janúar-31. maí, sumarönn 1. júní-31. ágúst og haustönn sem er 1. september-31. desember. Öll skráning og umsýsla Frístundakortsins fer fram með rafrænum hætti á Rafræn Reykjavík.
|
Innheimta aðildarfélaga er með ýmsum hætti og er mikilvægt að forráðamenn kynni sér hvernig innheimtu er háttað hjá aðildarfélagi síns barns. Félögum er heimilt að ákveða sjálf lokadag ráðstöfunar á hverri önn svo hægt sé að ganga frá innheimtu eftirstöðva séu þær einhverjar. Ekki er heimilt að flytja styrkinn á milli ára.
Frekari upplýsingar um kortið s.s. reglur og skilyrði, umsóknir félaga og leiðbeiningar fyrir félög og forráðamenn má finna hér til hægri á síðunni. |
 |